Þjónusta



Skrifstofa Menntavísindasviðs skiptist í almenna skrifstofu og kennsluskrifstofu. Undir skrifstofu sviðsins heyra einnig Menntasmiðja, bókasafn og SRR.

Á almennu skrifstofunni er tekið við erindum til forseta sviðsins og þar er miðstöð kynningarmála, fjármála og starfsmannamála á sviðinu.

Skrifstofan er á 1. hæð við Stakkahlíð - í Múla.

Á kennsluskrifstofu er verkefnisstjórn fyrir deildir Menntavísindasviðs, vettvangsnám, alþjóðamál og umsjón með meistaraverkefnum. Þar er haldið utan um námsferla nemenda og unnið að kennsluskrá, inntökumálum, stundatöflugerð, stofubókunum, brautskráningu ofl. fyrir sviðið.
Kennsluskrifstofa sinnir einnig allri almennri þjónustu við nemendur, kennara og deildir.

Kennsluskrifstofan er á 1. hæð við Stakkahlíð - í Enni.

deila á facebook

Hafðu samband

1. hæð, Stakkahlíð - Enni
Opið 9-15 alla virka daga
Sími: 525-5950

1. hæð, Stakkahlíð - Múli
Sími: 525-5961