Rannsóknir



Á Menntavísindasviði eru stundaðar fjölbreyttar rannsóknir á sviði menntunar, uppeldis og þjálfunar í þeim tilgangi að skapa nýja þekkingu íslensku samfélagi til hagsbóta. Markmiðið er að efla rannsóknir og leitast við að tryggja að skipulag og þróun íslenskra fræðslu- og menntamála geti verið byggð á bestu fáanlegu þekkingu á hverjum tíma.

Menntavísindastofnun

Menntavísindastofnun er rannsókna- og fræðastofnun sem starfrækt er við Menntavísindasvið. Meginhlutverk Menntavísindastofnunar er að efla rannsóknir og rannsóknarumhverfi innan Menntavísindasviðs. Stofnuninni er ætlað að styðja rannsóknarstofur og einstaka rannsakendur með því að veita aðstoð við gerð umsókna í rannsóknasjóði; bæði innlenda og erlenda samkeppnissjóði auk annarra fjármögnunarleiða. Einnig mun hún veita ráðgjöf og aðstoð við birtingu á niðurstöðum rannsókna, aðstoða við skipulag rannsókna og styðja við þróunarverkefni sem unnin eru á sviðinu.

Forstöðumaður Menntavísindastofnunar er Kristín Erla Harðardóttir krishar@hi.is / s: 525-4165. Hún hefur aðsetur á 1. hæð í Hamri.

Undir Menntavísindastofnun heyra nítján rannsóknarstofur Menntavísindasviðs

Reglur um Menntavísindastofnun tóku gildi 1. janúar 2010, sjá á slóðinni: 
http://www.hi.is/is/skolinn/reglur_nr_1023_2009.


Stefna Menntavísindasviðs í rannsóknum 2008-2013
 var samþykkt á fundi háskólaráðs Kennaraháskóla Íslands 24. júní 2008. Henni fylgir aðgerðaáætlun sem fylgt verður eftir með starfi Rannsóknarráðs. Það kemur í stað vísindaráðs sem hafði áður ábyrgð á rannsóknum við Kennaraháskóla Íslands. 

Rannsóknarráð hefur með höndum þróun rannsókna á sviðinu, framkvæmd aðgerðaáætlunar sem fylgir stefnunni og tengsl við rannsóknartengt framhaldsnám. Í nefndinni sitja fulltrúar allra deilda sviðsins, umsjónarmaður með doktorsnámi og framkvæmdastjóri rannsókna sem er formaður ráðsins.

Rannsóknir eru unnar af akademískum starfsmönnum, doktorsnemum, rannsóknarhópum og rannsóknarstofum.


deila á facebook

Hafðu samband

1. hæð, Stakkahlíð - Enni
Opið 9-15 alla virka daga
Sími: 525-5950

1. hæð, Stakkahlíð - Múli
Sími: 525-5961