Nauðsynleg fylgigögn með umsóknum um framhaldsnám

Nauðsynleg fylgigögn með umsóknum um meistaranám og nám til viðbótardiplómu við Menntavísindasvið:

  • Staðfest afrit brautskráningarskírteina og námsferilsyfirlita úr öllu fyrra háskólanámi. Með staðfestum afritum er átt við afrit sem stimpluð eru með bláum stimpli af viðkomandi skóla, eða öðrum til þess bærum aðila. Þessi gögn þurfa að berast kennsluskrifstofu Menntavísindasviðs, við Stakkahlíð, 105 Reykjavík, áður en umsóknarfrestur rennur út. Gögnin þurfa að vera á pappír - rafræn afrit (skönnuð) eru ekki tekin gild.

Undantekning: Umsækjendur sem lokið hafa öllu fyrra háskólanámi sínu við HÍ eftir 1981, eða við KHÍ,  þurfa ekki að skila þessum gögnum inn, þar sem upplýsingarnar liggja fyrir.

  • Náms- og starfsferilskrá („CV“). Tölvuskjal, hengt við rafrænu umsóknina.
  • Greinargerð um markmið umsækjenda og væntingar til námsins. Tölvuskjal, hengt við rafrænu umsóknina.

Fylgigögn eiga að berast fyrir lok umsóknarfrests, 15. apríl 2012. Ef fylgigögn vantar er umsókn ekki gild og verður ekki afgreidd. Seinkun á afhendingu fylgigagna veldur seinkun á afgreiðslu umsóknar.