Kennaramenntun í deiglu - fundaröð Menntavísindasviðs
Hér má finna upptökur frá fundaröð Menntavísindasviðs um kennaramenntun.
1. fundur 26. apríl
Hugmyndafræðileg átök í mótun kennaramenntunar
- Jón Torfi Jónasson, forseti Menntavísindasviðs
2. fundur 3. maí
Samfélagið og áherslur í kennaramenntun
- Fagmennska kennara - kjarni kennaramenntunar - Sigurjón Mýrdal, deildarstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti
- Ábyrgð kennara í ósjálfbærum heimi - Kristín Vala Ragnarsdóttir, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs
- Haldbær menntun - Ólafur Páll Jónsson, dósent í heimspeki við Menntavísindasviðs
3. fundur 18. maí
Menntun kennara á vettvangi og tengsl við þróun skólastarfs
- Hvað merkir samábyrgð í kennaranámi? - Þuríður Jóhannsdóttir, lektor við Menntavísindasvið
- Starfsþjálfun í menntun framhaldsskólakennara og tengsl við þróun í skólastarfi - Ingibjörg Sigurðardóttir, framhaldsskólakennari í Menntaskólanum við Hamrahlíð
- Vangaveltur um vettvangsnám kennaranema frá sjónarhóli leikskólans - Ingibjörg E. Jónsdóttir, leikskólastjóri í leikskólanum Bakka
4. fundur 3. júní
Hæfni kennara og leiðir í menntun
Ný skipan náms - Kristín Karlsdóttir, formaður námsbrautar í leikskólakennarafræði
Sjónarhorn starfandi leikskólakennara - Marta Dögg Sigurðardóttir, leikskólakennari
Ný skipan náms - Kristín Jónsdóttir,formaður námsbrautar í grunnskólakennarafræði
Sjónarhorn starfandi grunnskólakennara - Guðbjörg Ragnarsdóttir, grunnskólakennari
Þekking og hæfni faggreinakennarans og ný skipan náms - Hafdís Ingvarsdóttir, formaður námsbrautar í framhaldsskólakennarafræði
Menntun faggreinakennara - Eiríkur Rögnvaldsson, deildarforseti við Háskóla Íslands
Sjónarhorn starfandi faggreinakennara - Anna María Gunnarsdóttir, framhaldsskólakennari
5. fundur 24. júní
Kennaramenntun í Evrópu og samantekt fyrri funda
- Straumar í kennaramenntun frá evrópskum sjónarhóli - Anja Swennen kennari við Vrije Universiteit í Amsterdam
- Samantekt fyrri funda - Anna Kristín Sigurðardóttir deildarforseti Kennaradeildar
- Pallborð: Elna Katrín Jónsdóttir varaformaður Kennarasambands Íslands, Jón Torfi Jónasson forseti Menntavísindasviðs, Sigurjón Mýrdal deildarstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti, Sjöfn Þórðardóttir formaður Heimila og skóla – landssamtaka foreldra og Svandís Ingimundardóttir skólamálafulltrúi hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Um fundaröðina
Árið 2008 voru samþykkt lög frá Alþingi um að menntun kennara á skólastigunum frá leikskóla til framhaldsskóla skuli frá og með júlí 2011 ljúka með meistaragráðu. Í kjölfar lagasetningarinnar hófst vinna við skipulag fimm ára kennaranáms í Kennaraháskóla Íslands og síðan við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Af þessu tilefni boðar Menntavísindasvið til fimm opinna funda á næstu vikum, sjá meðfylgjandi dagskrá. Tilgangur fundanna er í fyrsta lagi að gefa sem flestum tækifæri til að taka þátt í umræðu um kennaramenntun og í öðru lagi að kynna þær áætlanir um námsskipan sem Menntavísindasvið vinnur að um þessar mundir.Umræðaum ogendurskoðuná kennaramenntunhérá landierí taktviðþaðsemgeristannarsstaðar, s.s. í Danmörku, NoregiogSvíþjóð, þarsemframfergrundvallarendurskoðuná menntunkennara. Mikiðerrættum kennaramenntuná samnorrænumvettvangien einnigí fjölmörgumEvrópulöndumutanNorðurlandannaogvíðaum heim. Álitaefninerumörgogtekister á um inntakkennaramenntunaren rannsóknirstaðfestaaðkunnáttakennaraskiptirsköpumum árangursríktskólastarf.
Á hverjum fundi verða stutt framsöguerindi og síðan opnar umræður. Samantekt úr umræðum verður kynnt á síðasta fundi. Verður hún höfð til hliðsjónar við áframhaldandi vinnu við skipulag kennaranáms við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Fundirnir eru öllum opnir og verða í húsnæði Menntavísindasviðs kl. 15.00–16.30.
Allt áhugafólk um kennaramenntun er hvatt til að taka þátt í samræðunni.
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
Hafðu samband
1. hæð, Stakkahlíð - Enni
Opið 9-15 alla virka daga
Sími: 525-5950
1. hæð, Stakkahlíð - Múli
Sími: 525-5961

