Samsvæða tegundamyndun meðal fugla - Sympatric Speciation in Birds

29/08/2009 - 10:00
29/08/2009 - 11:30
Askja
Stofa 132.

Tilurð tegunda er ein af ráðgátum þróunarfræðinnar. Almennt er talið að tegundir myndist greiðlega í kjölfar landfræðilegrar uppskiptingu stofna, við svokallaða sérsvæða tegundamyndun (allopatric speciation). Annar möguleiki er að tegundir verði til án landfræðilegrar einangrunar, eða vegna  samsvæða tegundamyndunar (sympatric speciation). Samsvæða tegundamyndun er þó álitin af mörgum mjög ólíkleg. Samt eru til nokkur forvitnileg dæmi sem benda til þess að tegundir geti myndast úr einum stofni á einu landsvæði. Þróunarfræðingarnir og hjónin Peter og Rosemary Grant við Princeton háskóla hafa um áratuga skeið rannsakað þróun og atferli fugla, t.d. finkanna á Galapagoseyjum. Þau munu ræða niðurstöður sínar í erindi sem þau nefna “Samsvæða tegundamyndun meðal fugla”.

 

The famous evolutionary biologists Peter and Rosemary Grant, of Princeton University, will present their research on patterns and mechanisms of speciation in a seminar titled “Sympatric Speciation in Birds”. The talk will be in English.

 

deila á facebook