Ráðstefna um lífsleikni í skólum
|
01/11/2008 - 10:15 01/11/2008 - 16:00 |
Stakkahlíð/Háteigsvegur
Skriða og fjórar kennslustofur í Stakkahlíð |
Lífsleikni í skólum: forsendur, framkvæmd, framtíð
Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Siðfræðistofnun gangast fyrir ráðstefnu um lífsleikni í skólum laugardaginn 1. nóvember 2008 fyrir kennara á öllum skólastigum og annað áhugafólk. Ráðstefnan stendur frá 10:15 til 16 í húsakynnum Menntavísindasviðs í Stakkahlíð (áður Kennaraháskólinn).
Aðgangur er ókeypis og skráningar er ekki þörf.
Lífsleikni kom inn í námskrár leik-, grunn- og framhaldsskóla sem áherslusvið og/eða námsgrein með námskránum frá 1999. Hverjar voru og eru sögulegar og fræðilegar forsendur lífsleikninnar og hvað þýðir þetta hugtak eiginlega? Erla Kristjánsdóttir og Kristján Kristjánsson ræða þær spurningar fyrir hádegið. Eftir hádegið mun fjöldi kennara á ýmsum skólastigum kynna verkefni og kennsluhætti sína í lífsleikni. Leitað verður svara við spurningunni hvernig framkvæmd lífsleikninnar hefur tekist. Í lokin verður síðan efnt til pallborðsumræðna fyrirlesara og annarra gesta um framtíð lífsleikninnar.
Í matarhléinu verður sýning á námsefni sem útbúið hefur verið fyrir lífsleikni á ýmsum skólastigum, auk þess sem aðilar sem látið hafa sig lífsleikni varða munu kynna starfsemi sína.
Menntamálaráðuneytið styrkir ráðstefnuna.
Dagskrá:
10:15-10:30 Setning í fyrirlestrasalnum Skriðu. Vilhjálmur Árnason, prófessor í heimspeki við HÍ.
10:30-11:10 Erla Kristjánsdóttir, lektor menntavísindasviði HÍ: Saga lífsleikninnar
11:10-11:50 Kristján Kristjánsson, prófessor menntavísindasviði HÍ: Lífsleikni í skólum: Fræðilegar forsendur og framkvæmd.
11:50-13:00 Matarhlé. Ódýr hádegisverður á boðstólum.
13:00-15:00 Samhliða málstofur (sjá nánar á næsta blaði)
15:00-15:30 Kaffihlé. Kaffi og kleinur í boði ráðstefnuhaldara.
15:30-16:00 Pallborðsumræður um framtíð lífsleikninnar í fyrirlestrasalnum Skriðu. Í pallborði sitja Erla Kristjánsdóttir, Guðrún Alda Harðardóttir, Sjöfn Guðmundsdóttir, Ásgeir Beinteinsson og Kristján Kristjánsson. Fundarstjóri verður Ólafur Páll Jónsson, lektor menntavísindasviði HÍ.
Málstofur:
Hver málstofuflytjandi hefur 25 mínútur til umráða í fyrirlestur og fyrirspurnir.
A. Stofa H201
Guðrún H. Óðinsdóttir: Lífsleikni í leikskóla - kennsluefni.
Ingibjörg Jóhannsdóttir: Sýn kennara á lífsleikni í eyfirskum grunnskólum.
Aldís Yngvadóttir: Lífsleikni í grunnskólum - kennsla og viðhorf kennara. Niðurstöður rannsóknar sem gerð var vorið 2008.
Guðrún Ragnarsdóttir: Leikur að lifa og lífsleiknikennslan í Borgarholtsskóla
B. Stofa H202
Gunnar Finnbogason: Áföll í lífinu - tilvistarspurningar barna og unglinga
Ásdís Ólsen: Hagnýt sálfræði til sjálfsskoðunar og sjálfsskilnings
Anna Rósa Friðriksdóttir og Sigríður Guðmundsdóttir: Ég. Sjálfsþekking, samskipti og sköpun
Ingileif Ástvaldsdóttir og Sigríður Guðmundsdóttir: Lífsleikni og iðjuþjálfun
C. Stofa H208
Karl Frímannsson: Lífsleikni er skólastefna.
Sesselja Snævarr og Guðrún Kristinsdóttir: Mannréttindafræðsla í grunn- og framhaldsskólum
Sjöfn Guðmundsdóttir: Lífsleikni og sjálfbærni: Fræðsla til sjálfbærni á áratugi Sameinuðu Þjóðanna (ESD - decade 2005-2014)
Ragnhildur B. Guðjónsdóttir: Fjárinn. Kennsluefni í fjármála- og neytendafræðslu
D. Stofa H209
Gunnlaugur Sigurðsson: Lífsleikni Sókratesar
Jón Thoroddsen: Samræðulist sem lífsleikni
Jóhann Björnsson: Heimspeki sem lífsleikni
Róbert Jack: Lífstilraunir

