Ráðstefna í þjóðfélagsfræðum
|
07/05/2010 - 11:30 08/05/2010 - 17:00 |
Haskólinn á Bifröst |
Ráðstefna í þjóðfélagfræðum við Háskólann á Bifröst
Fjórða ráðstefnan um íslenska þjóðfélagsfræði verður haldin í Háskólanum á Bifröst 7.-8. maí næstkomandi, en hún hefur áður verið haldin í Háskólanum á Akureyri og Háskólanum á Hólum. Ráðstefnan verður fjölbreytt að vanda með framlögum félagsfræðinga, mannfræðinga, stjórnmálafræðinga, heimspekinga, lögfræðinga, viðskiptafræð-inga, og sagnfræðinga auk fræðimanna á tengdum sviðum. Ráðstefnunni er ætlað að skapa fræðilegan og faglegan umræðuvettvang um þjóðfélagsfræði í víðum skilningi. Þar gefst tækifæri til að kynna rannsóknir og koma þeim á framfæri og taka þátt í umræðum um það sem efst er á baugi hérlendis á sviði þjóðfélagsfræða. Fyrir hönd Bifrastar er umsjón ráðstefnunnar í höndum:
• Evu Heiðu Önnudóttur, aðjúnkts við félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst (evaheida@bifrost.is)
• Jóns Ólafssonar, prófessors og forseta félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst (jonolafs@bifrost.is)
Meðal efnis á ráðstefnunni má nefna:
- Siðferði í opinberu lífi Málefni innflytjenda
- Íslensk og alþjóðleg menning Stjórnmál og stjórnkerfi - Menningarfræði Menningarstjórnun
- Lýðræði Ferðamál - Kynjafræði Fjölmiðlar og samfélag
- Jafnréttismál Niðurstöður rannsóknarnefndarinnar
- Stjórnun Háskóli og samfélag
Fyrirlestrar
Þeir sem hafa hug á að taka þátt í ráðstefnunni eru vinsamlega beðnir að skrá sig fyrir 22. mars næstkomandi. Skráningareyðublað er að finna á vef Háskólans á Bifröst: http://www.bifrost.is/pages/umsoknir/skraning-a-radstefnu/. Þátttak-endur sem óska eftir að flytja fyrirlestur þurfa þá jafnframt að gefa upp titil fyrirlestrar síns ásamt stuttri lýsingu á efni hans. Stefnt er að því að ljúka skipulagningu ráðstefnunnar og skiptingu í málstofur í lok mars. Öll efni sem flokka má undir þjóðfélagsfræði í víðum skilningi koma til greina, og skipt verður í málstofur eftir efnum fyrirlestra.
Þátttökugjöld
Þátttakendur greiða 7000 kr. fyrir þátttöku í ráðstefnunni báða daga, 3000 kr. fyrir fyrri daginn en 4000 kr. fyrir seinni daginn. Hádegismatur og kaffi er innifalið í þátttökugjaldi. Auk þess er boðið upp á gistingu á Bifröst meðan húsrúm leyfir og sameiginlegan kvöldverð föstudaginn 7. maí. Mörg hótel og gistihús eru starfrækt í nágrenni Bifrastar og því ættu ekki að vera vandræði að finna gistingu jafnvel þótt allt fyllist á Bifröst. Þátttakendur eru þó hvattir til að tryggja sér gistipláss eins snemma og mögulegt er
Ráðstefna um íslenska þjóðfélagsfræði
– Drög að dagskrá
– Föstudagur 7. maí
11.30 Skráning
12.00 Hádegisverður
13.00-14.00 Plenumfyrirlestur 1
14.00-17.00 Málstofur
17.30 Gönguferð
19.00 Kvöldverður
Laugardagur 8. maí
9.00-12.00 Málstofur
12.00-13.00 Hádegisverður
13.00-14.00 Plenumfyrirlestur 2
14.00-17.00 Málstofur
17.00 Ráðstefnuslit

