Nýsköpunarmessa HÍ
|
18/11/2009 - 15:00 18/11/2009 - 19:00 |
Háskólatorg
á torginu |
Á Nýsköpunarmessu HÍ verða ýmis sprotafyrirtæki sem eiga rætur sínar að rekja til Háskóla Íslands með kynningarbása. Gestir eiga því kost á að kynna sér þá fjölbreyttu starfsemi sem þar fer fram. Einnig verður boðið upp á fyrirlestra og örkynningar á sprotafyrirtækjum.
Við sama tækifæri verða Hagnýtingarverðlaun HÍ, veitt. Hagnýtingarverðlaunin eru samkeppni sem er liður í viðleitni Háskóla Íslands til að hagnýta þekkingu sem verður til innan veggja skólans. Keppnin hefur árlega laðað fram fjölmargar hugmyndir sem bera vott um grósku og nýsköpun innan háskólasamfélagsins og hjá fyrirtækjum tengdum HÍ.
Nýsköpunarmessan fer fram á Háskólatorgi.
Dagskrá:
15 - Kynningarbásar opnaðir á Háskólatorgi
15.45 - Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, flytur erindi
Örkynningar á sprotafyrirtækjunum Oxymap, Clara, Hugarheill og Tunerific og verkefninu Fyrirmyndarkvenfrumkvöðlar Íslands.
16.30 - Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands veitt.
Rögnvaldur Ólafsson, formaður dómnefndar kynnir verðlaunatillögur.
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, afhendir verðlaunin.
17-18 - Kynningarbásar opnir og boðið upp á léttar veitingar.
Sprotafyrirtæki sem verða með kynningarbása:
Hugarheill
Oxymap
Clara
Gítarstillir
Lífeind
Icelandic Online
Remo
Samhengisháð ritvilluleit
Risk ehf
Fyrirtæki og stoðeiningar sem verða með kynningarbása:
Rannóknarþjónusta HÍ
Upplýsingastofa um einkaleyfi
Innovit
Einkaleyfastofa
Árnason-Faktor
Impra
Nýsköpunarmessan er hluti af Alþjóðlegri athafnaviku sem fer fram 16.-22. nóvember samtímis í meira en 100 löndum. Markmiðið er að vekja fólk til umhugsunar um gildi nýsköpunar og athafnasemi fyrir samfélagið, senda jákvæð og uppbyggileg skilaboð til Íslendinga og gefa þjóðinni tilefni til að horfa björtum augum fram á veginn.
Allir eru velkomnir og eru nemendur HÍ sérstaklega hvattir til að mæta.
Vefsíða Alþjóðlegrar athafnaviku á Íslandi

