Ný guðfræði hjónabandsins: mikil eða lítil breyting?
|
23/11/2009 - 11:40 23/11/2009 - 12:40 |
Lögberg
Stofa 103 |
ATH breytt stofuskipan: Lögberg, stofa 103
Sólveig Anna Bóasdóttir, dósent við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild H.Í., flytur fyrirlestur í málstofu Guðfræðistofnunar:
Ný guðfræði hjónabandsins: mikil eða lítil breyting?
Ríkisstjórnin hefur á stefnuskrá sinni að setja ein lög um hjúskap samkynhneigðra og gagnkynhneigðra á næstunni. Kirkjan þarf þá að taka afstöðu til þess hvort hún sé tilbúin að vígja tvo einstaklinga af sama kyni í heilagt hjónaband. Í fyrirlestrinum verður rætt um hverju þurfi að breyta í hefðbundinni hjónabandsguðfræði kirkjunnar þegar hjónabandið verður opnað fyrir samkynhneigðum og hvort þær breytingar séu guðfræðilega mikil- eða lítilvægar.

