Minningarráðstefna um Halldór Bjarnason
|
27/03/2010 - 13:00 27/03/2010 - 16:00 |
Árnagarður
201 |
Halldór Bjarnason, aðjunkt í sagnfræði, lést 9. janúar 2010, fimmtugur að aldri. Halldór var stundakennari í sagnfræði við Háskóla Íslands með hléum frá 1990 og tók við starfi sem aðjunkt í sagnfræði 1. júlí 2007. Hann var einstaklega áhugasamur kennari og afar vel metinn jafnt af nemendum sem samstarfsfólki. Nemendur Halldórs eiga veg og vanda að skipulagningu minningarráðstefnu um hann, sem haldin verður 27. mars í stofu 201 í Árnagarði.
Dagskrá
13:00 Ráðstefnan sett
13:10 „Skólahald á Íslandi á 19.öld - Kvennaskólaævintýrið“ Alma Sigrún Sigurgeirsdóttir nemi
13:40 „Hvernig Staple kenningin útskýrir það sem framboð-eftirspurn lögmálið getur ekki“ Rúnar Már Þráinsson nemi, Ólöf Vignisdóttir nemi
14:10 Kaffihlé
14:30 „Hvað á að gera við heiðingjana? -viðhorf og stefna Spánverja gagnvart íbúum Nýja Heimsins-“ Ragnhildur Hólmgeirsdóttir nemi
15:00 „Nýlendan Ísland? Skilningur kommúnista.“ Ragnheiður Kristjánsdóttir aðjunkt
15:30 Pallborðsumræður: „Ísland: Hjálenda eða nýlenda?”
16:00 Ráðstefnulok

