Markaðshneigð, markaðsleg færni og árangur? Friðrik Eysteinsson með málstofu
|
12/02/2010 - 12:00 12/02/2010 - 13:00 |
Háskólatorg
HT-103 |
Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands heldur málstofu föstudaginn 12. febrúar kl. 12-13 í HT-103.
Erindi Friðriks Eysteinssonar ber heitið:
Markaðshneigð, markaðsleg færni og árangur?
Hvernig svarar markaðsfræðin spurningunni:
Hvers vegna ná sum fyrirtæki viðvarandi betri árangri en önnur?
Í fyrirlestrinum verður leitast við að svara ofangreindri spurningu út frániðurstöðum rannsókna sem birst hafa undanfarna mánuði og ár.Skiptir markaðsleg færni meira máli við innleiðingu stefnu sem byggist áaðgreiningu eða stefnu sem byggist á lægstum kostnaði og hversu miklu máli skiptir hún fyrir innleiðingu viðskiptastefnu almennt? Hvaða áhrif hafa markaðshneigð og markaðsleg færni á árangur fyrirtækja? Skiptir markaðsleg færni meira eða minna máli heldur en færni í rannsóknum og vöruþróun og rekstrarleg færni?Hvernig ríma svörin við ofangreindu við þær áherslur sem verið hafa írekstri íslenskra fyrirtækja og búast má við að verði á næstu árum?
Friðrik Eysteinsson er aðjúnkt í markaðsfræði við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Hann hefur sérþekkingu bæði á sviði stefnumiðaðrarstjórnunar og markaðsmála auk víðtækrar stjórnunarreynslu

