Málþing til heiðurs Joan Maling
|
30/11/2009 - 10:30 01/12/2009 - 17:00 |
Aðalbygging
Stofa 225 |
Í tilefni af því að Joan Maling, prófessor emeritus við Brandeis-háskóla í Bandaríkjunum, verður sæmd heiðursdoktorsnafnbót frá Íslensku- og menningardeild hinn 1. desember, efna deildin og Málvísindastofnun til tveggja daga málþings, 30. nóvember og 1. desember, henni til heiðurs, í samvinnu við norræna öndvegissetrið NORMS.
Joan Maling stundaði nám í málvísindum við Massachusetts Institute of Technology í Cambridge í Bandaríkjunum og lauk doktorsprófi þaðan 1973. Doktorsritgerð hennar fjallaði um bragfræði í klassískri arabísku. Hún hóf fljótlega að kenna málvísindi við Brandeis-háskóla í Massachusetts, en auk þess hefur hún verið gistikennari við Harvard-háskóla og Háskóla Íslands. Hún var ritstjóri hins virta málvísindatímarits Natural Language and Linguistic Theory um árabil og hefur lengi setið í ritnefnd tímaritsins Íslenskt mál. Undanfarin ár hefur hún stýrt málvísindadeild bandaríska vísindasjóðsins (National Science Foundation, NSF).
Á síðari hluta áttunda áratugs 20. aldar fékk Joan áhuga á íslensku. Það varð til þess að hún kom hingað til Íslands á sumarnámskeið í íslensku. Hennar glögga gestsauga tók þá strax eftir einu af sérkennilegustu einkennum íslenskrar setningagerðar, svokallaðri stílfærslu (e. stylistic inversion), og hún birti grein um það efni í 2. árgangi tímaritsins Íslenskt mál 1980. Um þetta leyti skrifaði hún nokkrar greinar sem tengdust íslenskri setningagerð, ýmist ein eða með öðrum. Þessar greinar birtust í ýmsum vel metnum málvísindatímaritum, svo sem Language, Linguistics and Philosophy og Linguistic Inquiry. Á níunda áratugnum var hún líka virkur þátttakandi í fræðilegu samstarfi um norræna setningagerð, ásamt málfræðingum frá Íslandi og öðrum Norðurlöndum. Sumarið 1985 kenndi hún t.d. á norrænu fræðimannanámskeiði um málvísindi sem var haldið á Flúðum og árið 1990 kom út hjá hinu virta forlagi Academic Press greinasafnið Modern Icelandic Syntax sem hún ritstýrði ásamt Annie Zaenen. Þar birtust greinar eftir íslenska og erlenda málfræðinga, m.a. Joan sjálfa, og safnið varð til þess að auka mjög áhuga á íslenskri málfræði á alþjóðlegum vettvangi.
Joan hefur sýnt það í rannsóknum sínum að hún hefur ákaflega gott auga fyrir því sem er fræðilega áhugavert og forvitnilegt í íslensku máli. Auk stílfærslunnar sem áður er nefnd hefur hún t.d. skrifað um íslensk fornöfn, þolmynd, bæði nýja og hefðbundna, föll og fallakerfi – og jafnvel orðafar um mat og drykk. Í öllum þessum skrifum freistar hún þess að draga almennar fræðilegar ályktanir af viðfangsefninu.
Joan hefur oft komið í heimsóknir til Íslands og veturinn 1994–1995 dvaldist hún hér við kennslu og rannsóknir. Þá tók hún m.a. þátt í dómnefndarstörfum fyrir Heimspekideild. Hún hefur stutt íslensk málvísindi og málvísindamenn á margvíslegan hátt og unnið mikið að kynningu íslenskra málvísinda á alþjóðavettvangi.

