Málþing: Hefur maðurinn eðli? 200 ár frá fæðingu Charles R. Darwins
|
12/02/2009 - 16:30 12/02/2009 - 18:30 |
Askja
Stofa 132 |
Þann 12 febrúar næstkomandi eru 200 ár liðin frá fæðingardegi Charles Darwins og í ár eru einnig 150 ár frá útgáfu tímamótarits hans „Uppruni tegundanna”. Þessum tímamótum verður fagnað á margvíslegan hátt á árinu og hefst með málþingi á sjálfum afmælisdegi Darwins 12. febrúar.
Málþingið er öllum opið og verður haldið í Öskju, náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands, stofu 132 og hefst kl. 16:30.
Dagskrá málþingsins:
Ari K. Jónsson (Ph.D) forseti tölvunarfræðideildar Háskólans í Reykjavík - “Hefur maðurinn einkaleyfi á greind?”
Eyja Margrét Brynjarsdóttir (Ph.D) lektor í heimspeki við Háskóla Íslands - "Að hálfu leyti api enn"
Jón Thoroddsen heimspekingur og grunnskólakennari - "Er sköpunargáfan hluti af eðli mannsins?"
Steindór J. Erlingsson (Ph.D) vísindasagnfræðingur - "Darwin, Marx og spurningin um mannlegt eðli"
Skúli Skúlason (Ph.D) prófessor og rektor Háskólans á Hólum - “Maðurinn sem náttúruvera”
Í upphafi málþingsins verða veitt verðlaun í ritgerðarsamkeppni sem nýverið var efnt til meðal framhaldsskólanema um Darwin og áhrif þróunarkenningarinnar á vísindi og samfélög, auk þess sem vísindalegt framlag Darwins verður kynnt í nokkrum orðum.
Málþingið setur Sigurður S. Snorrason forseti líf- og umhverfisvísindadeildar Háskóla Íslands.
Sjá einnig vefsíðu Darwin daganna 2009, darwin.hi.is

