Málstofuröð: Hvað er afburðakennsla? - Rannveig Sverrisdóttir
|
12/02/2010 - 12:00 12/02/2010 - 13:00 |
Árnagarður
Stofa 304 |
Föstudaginn 12. febrúar næstkomandi mun Rannveig Sverrisdóttir, lektor í táknmálsfræði, halda stutt erindi um kennsluna sína.
Rannveig hlaut viðurkenning fyrir framlag við kennslu árið 2004.
Málstofan verður haldin í stofu 304 í Árnagarði frá 12-13
Ár hvert veitir Háskóli Íslands kennurum er þykja skara fram úr viðurkenningu fyrir lofsvert framlag við kennslu. Frá árinu 1999 hafa tólf kennarar við skólann hlotið slíka viðurkenningu. Kennslumiðstöð mun standa fyrir reglulegum málstofum í vetur þar sem nokkrir þessara kennara munu koma og ræða kennsluna sína. Meðal þess sem fyrirlesararnir munu ræða um er hvað þeir telji góða kennslu og hvað þeir leggi áherslu á í eigin kennslu.
Aðrar málstofur um kennslu vorið 2010:
19. febrúar kl. 12-13, stofa: Árnagarður 304 Sesselja Ómarsdóttir, dósent við lyfjafræðideild, viðurkenning fyrir framlag við kennslu árið 2008
5. mars kl. 12-13, stofa: Árnagarður 304 Róbert R. Spanó, prófessor við lagadeild, viðurkenning fyrir framlag við kennslu árið 2006
12. mars kl. 12-13, stofa: Árnagarður 304 Runólfur Smári Steinþórsson, prófessor í stjórnun og stefnumótun, viðurkenning fyrir framlag við kennslu árið 2005
19. mars kl. 12-13, stofa: Árnagarður 304 Arnfríður Guðmundsdóttir, prófessor við guðfræðideild, viðurkenning fyrir framlag við kennslu árið 2003
9. apríl kl. 12-13, stofa: Árnagarður 304 Hjálmtýr Hafsteinsson, dósent á Verkfræði- og náttúruvísindasviði, viðurkenning fyrir framlag við kennslu árið 2000
16. apríl kl. 12-13, stofa: Árnagarður 304 Ásgeir Haraldsson, prófessor við læknadeild, viðurkenning fyrir framlag við kennslu árið 2004

