Hvernig verður bók til? Ingibjörg Haraldsdóttir ræðir um Hvar sem ég verð
|
18/03/2010 - 12:00 18/03/2010 - 13:00 |
Háskólatorg
Stofa 105 |
Hvernig verður bók til? Ingibjörg Haraldsdóttir
Hádegisfyrirlestur 18. mars kl. 12 í stofu 105 á Háskólatorgi
Ingibjörg Haraldsdóttir ræðir um Hvar sem ég verð
Ingibjörg Haraldsdóttir er í senn virtur þýðandi og ástsælt ljóðskáld. Fyrsta ljóðabók hennar, Þangað vil ég fljúga, koma út árið 1974 og síðan hefur hún gefið út sex ljóðabækur. Hún hefur hlotið ýmis verðlaun fyrir ritstörf sín, m.a. Menningarverðlaun DV á Fávitanum eftir Dostójevskí, Íslensku þýðingaverðlaunin fyrir Fjárhættuspilarann, einnig eftir Dostojevskí, og Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir ljóðabókina Hvar sem ég verð en um hana hyggst Ingibjörg ræða í fyrirlestri sínum.
Fyrirlestur Ingibjargar er hluti af röð hádegisfyrirlestra sem ritlist og Bókmennta- og listfræðastofnun Háskóla Íslands hafa staðið fyrir í vetur undir yfirskriftinni „Hvernig verður bók til?“ Þar hafa íslenskir rithöfundar veitt innsýn í tilurð þekktra ritverka, lýst vinnulagi sínu frá hugmynd að fullfrágenginni bók og rætt um viðhorf sín til skáldskaparins. Áður hafa þau Jón Kalman Stefánsson, Þórunn Erlu- Valdimarsdóttir, Einar Kárason, Auður Ava Ólafsdóttir og Bragi Ólafsson flutt fyrirlestra í röðinni. Hafa þeir verið fjölsóttir og vakið mikla athygli. Flesta þeirra má finna á vefsíðu ritlistar.

