Gögn og gegnsæi í viðskiptum
|
09/03/2009 - 12:30 09/03/2009 - 14:00 |
Háskólatorg
Stofa 102 |
Fyrirlesari er Hjálmar Gíslason, stofnandi hugbúnaðarfyrirtækisins DataMarket.
Gegnsæi, óhindrað aðgengi að upplýsingum og nýting gagna við upplýsta ákvarðanatöku eru allt lykilatriði fyrir Næsta Ísland og raunar heiminn allan við að vinda ofan af vantrausti í stjórnmálum, fjármálum og fyrirtækjarekstri.
Farið verður í gegnum hvernig hægt er að breyta þurrum gögnum í gagnlegar upplýsingar og jafnvel hreina afþreyingu með myndrænni framsetningu og bættu aðgengi.
Fjallað verður um nýstárlegar aðferðir við "algert gegnsæi" í fyrirtækjarekstri og að lokum kafað ofan í gögn sem varpa ljósi á ris og fall íslenska hagkerfisins -gögn sem hefðu getað varað við þróuninni miklu fyrr ef einhver hefði verið að horfa á mælana.
Allir velkomnir

