Fyrirlestur hjá Vísindafélagi Íslendinga
|
25/11/2009 - 20:00 25/11/2009 - 22:00 |
Norræna húsið |
Sigríður Sigurjónsdóttir, dósent í íslenskri málfræði við Hugvísindasvið Háskóla Íslands heldur fyrirlestur á vegum Vísindafélags Íslendinga í Norræna Húsinu 25. Nóvember 2009, kl. 20:00, um efnið: „Það var sagt mér að það væri partí hérna“: ný setningagerð í íslensku.
Algengt er að börn og unglingar segi setningar eins og: „Það var hrint mér í skólanum í dag“ og „Svo var bara valið mig.“ Eldra fólki finnst þessar setningar yfirleitt óeðlilegar og myndi frekar segja: „Mér var hrint í skólanum í dag“ og „Svo var ég bara valin(n).“ Hér er um að ræða setningafræðilega málbreytingu sem virðist einkum vera algeng í máli yngra fólks.
Í fyrirlestrinum verður fjallað um þessa nýju setningagerð og rætt um niðurstöður rannsókna á útbreiðslu, eðli og upptökum þessarar nýjungar í málinu.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Kaffiveitingar í boði Vísindafélagsins í lok fundar.

