Framhaldsnámskynning í HÍ
|
25/03/2010 - 16:00 25/03/2010 - 18:00 |
Háskólatorg
|
Háskóli Íslands mun kynna allt framhaldsnám við skólann, fimmtudaginn 25. mars nk. Þar kynna öll fræðasvið skólans þá miklu möguleika sem í boði verða í framhaldsnámi á næsta skólaári. Kynningin fer fram á Háskólatorgi milli kl. 16–18.
Mikil gróska hefur verið í framhaldsnámi við Háskóla Íslands síðustu ár og hefur framhaldsnemum við skólann fjölgað hratt. Aðstæður til rannsókna, kennslu og samskipta á háskólalóðinni hafa tekið stakkaskiptum með nýjum byggingum og eflingu rannsóknar- og þjónustustofnana Háskólans. Því fylgja ný tækifæri í námsframboði og enn styrkari tengsl við atvinnulífið en áður.
Meistara- og doktorsnám kallast einu orði framhaldsnám. Meistaranám er önnur háskólagráða og henni lýkur með MA, MS eða M.Ed. gráðu. Námið tekur að jafnaði tvö ár. Doktorsnám tekur að jafnaði 3-6 ár og lýkur með Ph.d. gráðu.
Einnig býður Háskólinn ýmsar styttri námsleiðir á framhaldsstigi, t.d. diplómanám, hagnýtt nám og nám til starfsréttinda.
Nú eru um 4000 nemendur skráðir í framhaldsnám við Háskólann, þar af á fimmta hundrað í doktorsnám. Háskóli Íslands er eini háskólinn hérlendis sem býður upp á framhaldsnám á öllum fræðasviðum.
Háskóli Íslands er rannsóknaháskóli og allt doktorsnám og mikill hluti meistaranáms byggist á rannsóknum. Nemendur njóta handleiðslu fremstu vísindamanna þjóðarinnar í rannsóknum sínum og skapa í samstarfi við þá nýja þekkingu.
Hér er listi yfir allar námsleiðir í framhaldsnámi við Háskóla Íslands:
http://www.hi.is/is/skolinn/namsleidir_i_framhaldsnami

