Finnsk menningarhátíð - Suomi Festivaali
|
05/12/2009 - 12:00 05/12/2009 - 17:00 |
Norræna húsið |
Laugardaginn 5. desember frá kl. 12-17 verður efnt til finnskrar menningarhátíðar fyrir alla fjölskylduna í Norræna húsinu. Að hátíðinni standa Hugvísindasvið Háskóla Íslands, Finnska sendiráðið, Suomi-félagið og Norræna húsið. Dagskráin sem hefst á hádegi verður mjög fjölbreytt og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Jóladagatal Norræna hússins verður á sínum stað kl. 12.34 eins og alla daga í desember fram að jólum en að auki verða fjölbreytt atriði og kynningar, m.a. tónlist, dans, bókakynningar, kökubasar, kvikmyndasýning, kynning á finnskri menningu, hönnun og námi í finnsku við Háskóla Íslands. Í bókasafninu verður sýning á ýmsum munum tengdum Múmínálfunum auk upplesturs og þættir með Múmínálfunum sýndir. Á veitingastaðnum Dill verður hægt að kaupa finnskar veitingar.
Dagskráin hefst á hádegi með ávarpi sendiherra Finnlands á Íslandi og lýkur síðdegis með stuttri kvikmynd eftir hinn nafntogaða finnska kvikmyndaleikstjóra Aki Kaurismäki. Allir velkomnir og enginn aðangseyrir.
DAGSKRÁ
Kynningarsvæði í anddyri
- Spurningaleikur, aðalvinningur er Nokia farsími
- Markaður á vegum Suomi-félagsins og kynning á félaginu
- Nám í finnsku við Háskóla Íslands
- Kynningar- og markaðsefni um Finnland
- Finnsk hönnun
- Bækur til sýnis um Finnland og finnska menningu
- Bókakynning Uppheima, nýjar finnskar þýðingar
- Kalevala sýning
Fyrirlestrarsalur
Stutt atriði á u.þ.b. 30 mínútna fresti út dagskrána.
- 12.00 Ingibjörg Þórisdóttir: Dagskrárkynning
- 12.10 Sendiherra Finnlands, Hannu Hämäläinen, opnar hátíðina
- 12:34 Jóladagatal Norræna hússins
- 13:00 Letkajenkka dans
- 13:30 Þórdís Gísladóttir: Tove Jansson og Múmínálfarnir
- 14:00 Upplestur úr nýjum þýðingum. Väinö Linna: Óþekktur hermaður og Tapio Koivukari: Yfir hafið og í steininn.
- 14:30 Satu Rämö: Kalevala - from an egg to a berry
- 15:00 Sari Peltonen: Finnsk hönnun og arkitektúr
- 15:45 Björn Ægir Norðfjörð: Á vegum úti: Aki Kaurismäki og norræn kvikmyndagerð
- 16.00 Bíó: Aki Kaurismäki. Hugaðu að treflinum þínum, Tatjana (1994, 60 mín, enskur texti)
Múmínálfakynning í bókasafninu
Ýmsir hlutir tengdir Múmínálfunum til sýnis.
- 14:15 Upplestur úr bók: Herra Hú
- 15:15 Upplestur úr bók: Múmínálfarnir
- 14-16.00 Þættir um Múmínálfana sýndir

