Finkur Darwins og þróun - Evolution of Darwin's Finches
|
29/08/2009 - 13:00 29/08/2009 - 15:00 |
Aðalbygging
Hátíðarsalur |
Charles Darwin kom til Galapagoseyja árið 1835 og heillaðist samstundis af jarðfræði og lífríki eyjanna. Á eyjunum má finna afar fjölbreytilegar finkur sem hafa aðgreinst í 13 mismunandi afbrigði vegna aðlagana að mismunandi fæðu og umhverfi. Þannig eru sumar finkutegundirnar með mjóa langa gogga sem henta vel til að ná skordýrum. Aðrar tegundir eru með breiða og stutta gogga sem nýtast vel til að brjóta skurn af hörðum fræjum. Þróunarfræðingarnir og hjónin Peter - og Rosemary Grant við Princeton háskóla, hafa um áratuga skeið rannsakað fjölbreytileika finkanna á Galapagos. Þau hafa orðið vitni að hraðri þróun, þar sem goggar ákveðinna tegunda hafa breyst mjög hratt í kjölfar breytinga á fæðuframboði. Þau munu segja frá niðurstöðum sínum í yfirlitserindi er þau nefna "Finkur Darwins og þróun".
Erindið er hluti af fyrirlestraröð í tilefni 200 ára afmælis Charles Darwin. Kristín Ingólfsdóttir rektor Háskóla Íslands mun setja fyrirlestraröðina. Dagskrá Darwin daganna 2009 má nálgast á darwin.hi.is. Erindið verður flutt á ensku.
English summary:
The famous evolutionary biologists Peter and Rosemary Grant, of Princeton University, will present their research on the Galapagos finches in a seminar titled "Evolution of Darwin's Finches".
The seminar is part of seminar series honoring Charles Darwin, as 200 years have passed since his birth. The Rector of the University of Iceland, Kristín Ingólfsdóttir will provide welcome and opening remarks. The talk will be in English.

