Búsetu og fæðuvenjur á unga aldri og tengsl þess við áhættu á krabbameini í blöðruhálskirtli síðar á ævinni
|
01/12/2009 - 13:00 01/12/2009 - 14:00 |
Aðalbygging
stofa 231 |
Jóhanna Eyrún Torfadóttir, MSc, næringarfræðingur og doktorsnemi í Lýðheilsuvísindum kynnir fyrstu niðurstöður í doktorsverkefni sínu.
Bakgrunnur Samkvæmt mataræðisrannsókn frá árinu 1939 kom fram talsverður munur á fæðuvenjum Íslendinga háð búsetu þeirra.Voru þá bornar saman fæðuvenjur einstaklinga í sveit, sjávarþorpi eða Reykjavík. Til að geta skoðað tengsl milli næringar (háð búsetu) og áhættu á krabbameini eru notuð gögn úr Reykjavíkurrannsókn Hjartaverndar. Þátttakendur eru 9115 karlmenn sem fæddir eru á árunum 1907-1936.
Í lok árs 2008 höfðu 1134 þeirra greinst með krabbamein í blöðruhálskirtli. Þátttakendur gáfu upplýsingar um búsetu sína frá fæðingu og því er hægt kanna samband milli næringar á fyrstu árum ævinnar og áhættu á krabbameini í blöðruhálskirtli.
Gögn Hjartaverndar skapa einstakar aðstæður til að rannsaka ofangreinda rannsóknarspurningu. Krabbamein í blöðruhálskirtli er eitt algengasta krabbameinið meðal karla á Íslandi og á Vestulöndum. Niðurstöður þessarar rannsóknar geta opnað nýja möguleika til forvarna.
Allir velkomnir

