BÆR fagnar 20 ára afmæli Barnasáttmálans
|
23/11/2009 - 12:00 23/11/2009 - 13:00 |
Stakkahlíð/Háteigsvegur
Skáli |
Í tilefni af 20 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna stendur rannsóknastofa í bernsku- og æskulýðsfræðum BÆR á Menntavísindasviði Háskóla Íslands fyrir dagskrá mánudaginn 23. nóvember. Prófessorarnir Gunnar Finnbogason og Guðrún Kristinsdóttir flytja ávörp um réttindi og málefni barna. Kynnt verða sjáfboðaliðaverkefni sem kennaranemum gefst kostur á að taka þátt í. Þau felast annars vegar í nýrri svarþjónustu fyrir börn og unglinga heyrumst.is sem Barnaheill stendur fyrir og hins vegar í verkefninu Félagsvinur á vegum Rauða Kross Íslands. Þá sýna nemendur í 8. og 9. bekk í Austurbæjarskóla stuttmyndir um tjáningu og tjáningarfrelsi sem þau unnu í tengslum við svarþjónustuna heyrumst.is.
Bókasafn Menntavísindasviðs verður með sýningu á efni, bókum og lokaritgerðum sem fjalla um Barnasáttmálann og og barnavernd en nemar sviðsins hafa margir unnið verkefni um það efni.
Barnasáttmálinn var samþykktur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna haustið 1989. Hann öðlaðist gildi á Íslandi 28. nóvember 1992. Barnasáttmálinn felur í sér víðtæk réttindi. Hann er viðurkenning á því að börn séu hópur sem þarfnist verndar og að réttinda þeirra hafi ekki verið nægilega gætt í fyrri mannréttindasáttmálum. Hann kveður m.a. á um að öll börn eigi rétt á að alast upp í friði og við öryggi, að njóta jafnræðis og góðra lífsskilyrða og að þau eigi rétt á menntun. Þá kveður sáttmálinn á um rétt barna til tjáningar og til að hafa áhrif í samræmi við aldur þeirra og þroska auk fjölmargs annars en ákvæðin eru alls 54.
Dagkráin stendur frá kl. 12.00 til 13.00 og fer fram í Skála í húsnæði Menntavísindasviðs í Stakkahlíð.
Dagskrá
Setning
Anna Kristín Sigurðardóttir deildarforseti Kennaradeildar Menntavísindasviðs
Rödd barna
Gunnar Finnbogason prófessor við Menntavísindasvið
Stoppum – Sjáum – Hlustum. Skilaboð barna til fullorðinna
Guðrún Kristinsdóttir prófessor við Menntavísindasvið
Kynning á vefnum heyrumst.is
Pétrína Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri Barnaheilla
Stuttmyndasýning um tjáningu og tjáningarfrelsi
Nemendur í Austurbæjarskóla
Allir velkomnir.

