Arnþór Helgason: Stiklað á stóru um sögu kínverskrar tónlistar

18/03/2010 - 12:00
18/03/2010 - 13:15
Gimli
Stofa 102

Fyrirlestur Konfúsíusarstofnunar og Kínversk-íslenska menningarfélagsins: Arnþór Helgason: Stiklað á stóru um sögu kínverskrar tónlistar.

Í fyrirlestrinum verður stiklað á stóru um sögu kínverskrar tónlistar frá því um 7.000 árum f.kr fram yfir miðja síðustu öld. Fjallað verður um nokkrar tegundir tónlistar, samskipti Kínverja við aðrar þjóðir og áhrif á tónlist þeirra. Leikin verða nokkur tóndæmi sem sýna fjölbreytileika tónlistarinnar. Raktar verða nokkrar staðreyndir sem sýna að Kínverjar voru langt á undan öðrum þjóðum í vísindalegum athugunum sínum í tónfræði og nefnt. M.a. að um 400 árum fyrir krist höfðu verið skilgreind 360 tónbil. Rætt verður um tónstiga sem notaðir hafa verið í Kína og hugsanleg tengsl við Indland og Persíu.

Fjölmargar heimasíður eru til um kínverska tónlist.

Sérstök athygli skal vakin á síðunni www.readchina8.com sem Wang Ronghua, fyrrum sendiherra Kínverska alþýðulýðveldisins á Íslandi, stýrir (þarfnast aðgangs og lykilorðs, skráning ókeypis).

Einnig er áhugavert að skoða eftirfarandi síður: http://www.asianclassicalmp3.org/amoy.htm http://www.philmultic.com/English/Chinese_music.html http://en.wikipedia.org/wiki/Music_of_China http://www.youtube.com/watch#!v=E3mGckQ_Csg&feature=related

Arnþór Helgason er formaður Kínversk-íslenska menningarfélagsins, en hann hefur setið í stjórn félagsins nær óslitið frá árinu 1974. Á síðasta ári var hann sæmdur titlinum Vináttusendiherra.

deila á facebook