After the Gold Rush : Eftir gullæðið
|
27/05/2010 - 09:00 28/05/2010 - 17:00 |
Félags- og mannvísindadeild stendur fyrir ráðstefnu dagana 27. - 28. maí 2010. Ráðstefnan ber yfirskriftina After the Gold Rush: Economic Crisis and Consequences og þar verður fjallað um ýmsar hliðar efnahagskreppunnar frá sjónarhorni félagsvísindanna.
Ísland er kjörinn staður til þess að halda slíka ráðstefnu vegna þeirra sérstöku aðstæðna sem skapast hafa hér á landi að undanförnu.
Aðalfyrirlesarar verða Karin Ho, lektor í mannfræði við háskólann í Minnesota, Kathryn L. Norsworthy, prófessor í ráðgefandi sálfræði við Rollins College í Flórída, Stefán Ólafsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands og Fantu Cheru prófessor við Uppsala háskóla. Tilkynnt verður síðar um aðra fyrirlesara.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna

