After the Gold Rush : Eftir gullæðið

27/05/2010 - 09:00
28/05/2010 - 17:00

Félags- og mannvísindadeild stendur fyrir ráðstefnu dagana 27. - 28. maí 2010. Ráðstefnan ber yfirskriftina After the Gold Rush: Economic Crisis and Consequences og þar verður fjallað um ýmsar hliðar efnahagskreppunnar frá sjónarhorni félagsvísindanna.

Ísland er kjörinn staður til þess að halda slíka ráðstefnu vegna þeirra sérstöku aðstæðna sem skapast hafa hér á landi að undanförnu.



Ráðstefna í þjóðfélagsfræðum

07/05/2010 - 11:30
08/05/2010 - 17:00
Nánari staðsetning: 
Haskólinn á Bifröst

Ráðstefna í þjóðfélagfræðum við Háskólann á Bifröst



69

30/03/2010 - 19:30
30/03/2010 - 21:30
Staðsetning viðburðar: 
Oddi
Nánari staðsetning: 
Stofa 101

Öskra! – hreyfing byltingarsinnaðra stúdenta, sýnir róttækar kvikmyndir um andspyrnu fólks gegn þeim öflum sem standa fyrir ofbeldi og algjörri stjórnun á mannlegu samfélagi, eyðileggingu plánetunnar, stríðum, kúgun og ójöfnuði.

Þriðjudaginn 30.mars er það: 69



Minningarráðstefna um Halldór Bjarnason

27/03/2010 - 13:00
27/03/2010 - 16:00
Staðsetning viðburðar: 
Árnagarður
Nánari staðsetning: 
201

Halldór Bjarnason, aðjunkt í sagnfræði, lést 9. janúar 2010, fimmtugur að aldri. Halldór var stundakennari í sagnfræði við Háskóla Íslands með hléum frá 1990 og tók við starfi sem aðjunkt í sagnfræði 1. júlí 2007. Hann var einstaklega áhugasamur kennari og afar vel metinn jafnt af nemendum sem samstarfsfólki. Nemendur Halldórs eiga veg og vanda að skipulagningu minningarráðstefnu um hann, sem haldin verður 27. mars í stofu 201 í Árnagarði.

Dagskrá

13:00 Ráðstefnan sett



Framhaldsnámskynning í HÍ

25/03/2010 - 16:00
25/03/2010 - 18:00
Staðsetning viðburðar: 
Háskólatorg

Háskóli Íslands mun kynna allt framhaldsnám við skólann, fimmtudaginn 25. mars nk. Þar kynna öll fræðasvið skólans þá miklu möguleika sem í boði verða í framhaldsnámi á næsta skólaári. Kynningin fer fram á Háskólatorgi milli kl. 16–18.



Kvikmyndasýning: Amores perros

23/03/2010 - 17:00
23/03/2010 - 19:00
Staðsetning viðburðar: 
Lögberg
Nánari staðsetning: 
Stofa 101

Kvikmyndaklúbburinn Cine Club Hispano býður upp á kvikmyndasýningar í vetur en þetta er óformlegur félagsskapur sem rekinn er í tengslum við kennslu í spænsku við Deild erlendra tungumála á Hugvísindasviði.

Sýningar eru alla þriðjudaga kl. 17 í Lögbergi, stofu 101.

Myndirnar eru sýndar á spænsku með enskum texta. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn!

Dagskrá á vormisseri



Arnþór Helgason: Stiklað á stóru um sögu kínverskrar tónlistar

18/03/2010 - 12:00
18/03/2010 - 13:15
Staðsetning viðburðar: 
Gimli
Nánari staðsetning: 
Stofa 102

Fyrirlestur Konfúsíusarstofnunar og Kínversk-íslenska menningarfélagsins: Arnþór Helgason: Stiklað á stóru um sögu kínverskrar tónlistar.



Hvernig verður bók til? Ingibjörg Haraldsdóttir ræðir um Hvar sem ég verð

18/03/2010 - 12:00
18/03/2010 - 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Háskólatorg
Nánari staðsetning: 
Stofa 105

Hvernig verður bók til? Ingibjörg Haraldsdóttir
Hádegisfyrirlestur 18. mars kl. 12 í stofu 105 á Háskólatorgi
Ingibjörg Haraldsdóttir ræðir um Hvar sem ég verð



Konfúsíusarstofnunin Norðurljós sýnir kvikmyndina Óþekktar Nautnir (Ren xiao yao)

17/03/2010 - 17:15
17/03/2010 - 19:15
Staðsetning viðburðar: 
Askja
Nánari staðsetning: 
Stofa 132

Konfúsíusarstofnunin Norðurljós sýnir kvikmyndina Óþekktar Nautnir (任逍遥) eftir kínverska leikstjórann Jia Zhangke.

Myndin, sem er frá árinu 2002, segir frá ungmennum af kynslóð einbirnanna, þ.e. börn sem fæðst hafa eftir að eins barns stefnunni var komið á. Bin Bin og vinir hans eru fulltrúar nýrrar kynslóðar í Kína. Þeir eru óánægðir, uppreisnargjarnir og vegna áhrifa frá og vestrænni sem og kínverskri afþreygingarmenningu ekki fyllilega í tenglsum við raunverleikann og líðandi stund.



Eiga nemar að lifa á loftinu?

17/03/2010 - 13:15
17/03/2010 - 14:15
Staðsetning viðburðar: 
Askja
Nánari staðsetning: 
Stofa 132

Eiga háskólanemendur að lifa á loftinu?

Málstofa 17. mars um réttindi nemenda í sumar!

Vissir þú...

- að það er óvíst hvort nemendum við Háskóla Íslands stendur til boða lánshæf námskeið í sumar?
- að réttur námsmanna til atvinnuleysisbóta hefur verið afnuminn?
- að sveitafélögin virðast ekki vera að veita námsmönnum fjárhagsaðstoð yfir sumartímann þrátt fyrir framfærsluskyldu?