„Breaking down the Barriers“

24/08/2009 - 09:00
25/08/2009 - 18:00
Lögberg
Stofa 201

Dagana 24.-25. ágúst nk. verður haldið alþjóðlegt þverfræðilegt námskeið við Háskóla Íslands. Að námskeiðinu standa lagadeild, Stofnun Sæmundar Fróða og námsstjórn umhverfis- og auðlindafræði. Námskeiðið er fyrst og fremst ætlað doktorsnemum sem stunda þverfræðilegar rannsóknir með áherslu á umhverfis- og auðlindafræði.

Námskeiðið er styrkt af NordForsk og einnig af umhverfisráðuneyti og Landsvirkjun. Námskeiðið er ætlað doktorsnemum sem fást við rannsóknir sem eru að öllu leyti þverfræðilegar eða hafa þverfræðilega þætti á ofangreindu sviði.

Nánari upplýsingar um námskeiðið eru á http://www.ssf.hi.is/

deila á facebook