Rannsóknir



Rannsóknir í Umhverfis- og byggingarverkfræðideild heyra undir Verkfræðistofnun, vettvang rannsókna í verkfræði við HÍ. Unnið er að margvíslegum fræðilegum og hagnýtum verkefnum í samstarfi við fyrirtæki í íslensku atvinnulífi og með sérfræðingum í alþjóðlegu vísindasamfélagi.

Rannsóknaniðurstöður eru birtar í innlendum og erlendum ráðstefnutímaritum og í erlendum ritrýndum tímaritum (ISI).

Yfirlit yfir rannsóknasvið akademísks starfsfólks deildarinnar.

Rannsóknir fara einkum fram á fjórum sviðum.

Aflfræði og burðarþolsfræði

Rannsóknarmiðstöð í jarðskjálftaverkfræði

Á Aflfræðistofu VHÍ eru stundaðar rannsóknir á sviði hagnýtrar aflfræði. Meirihluti verkefna er unninn í nánum tengslum við fyrirtæki og stofnanir. Sérstök áhersla er lögð á rannsóknir sem tengjast umhverfisþáttum í náttúru Íslands. Sem dæmi má nefna rannsóknir á jarðskjálftum, fárviðrum og snjóflóðum. Stofan annast umfangsmiklar jarðskjálftamælingar. Markmið mælinganna er að meta áhrif jarðskjálfta á mannvirki. Enn fremur eru stundaðar mælingar á vindi og áhrifum hans á mannvirki, svo og mælingar á snjóflóðum og skriðuföllum. Niðurstöður slíkra mælinga hafa meðal annars verið notaðar við gerð áhættumats svo og við áhættustjórnun.

Straumfræði og umhverfisverkfræði

Vatnaverkfræðistofa

Hlutverk Vatnaverkfræðistofu er að stunda rannsóknir á sviði umhverfisverkfræði, vatnafræði, straumfræði, brunaverkfræði, jarðfræði og virkjanahönnunnar. Á stofunni vinna starfsmenn umhverfis- og byggingarverkfræðideildar að margvíslegum fræðilegum og hagnýtum verkefnum í samstarfi við fyrirtæki í íslensku atvinnulífi og með sérfræðingum úr háskólum í Evrópu og Norður Ameríku. Niðurstaða rannsóknanna eru birtar í formi ritrýnda greina, fyrirlestra á íslenskum og alþjóðlegum vísindaráðstefnum, og birtingar í bókum og öðrum fræðiritum.

Jarðtækni, vegagerð, samgöngur

Innan þessa sviðs er unnið að rannsóknum í jarð- og bergtækni sem og á aflfræðilegum eiginleikum íslensks malbiks, mælingar á sveiflufræðilegum eiginleikum jarðefna auk rannsókna á vegagerð og samgöngum. Dæmi um rannsóknarverkefni eru: Áhrif raka og hita á burðarþol vega og Nýting umferðargreiningartækni til að bæta veghönnun og umferðaröryggi.

Skipulagsfræði og framkvæmdafræði

Á þessu sviði hefur t.d. verið fjallað um skipulag á hálendi og framkvæmdir þar. Einnig er fjallað um skipulag í þéttbýli, t.d. hafa verkefni verið unnin er tengjast því svæði sem Reykjavíkurflugvöllur er nú á. Einnig hafa verkefni verið unnin á sviði umhverfismats.

Niðurstöður rannsókna eru birtar í formi ritrýndra greina, í bókum og öðrum fræðiritum, auk fyrirlestra á íslenskum og alþjóðlegum vísindaráðstefnum.

deila á facebook

georg