Nám
Nám í umhverfis- og byggingarverkfræði spannar mörg fagsvið sem eru mikilvæg fyrir uppbyggingu og rekstur nútímaþjóðfélags.
Meðal fagsviða má nefna: Mannvirkjahönnun, vatna- og straumfræði, burðarþolsfræði, jarðtækni- og grundun, umhverfisverkfræði, samgönguverkfræði, framkvæmdafræði, steinsteypu-, stál- og trévirki, fráveitu- og sorphirðumál, jarðskjálftaverkfræði, vega- og flugbrautagerð og loks skipulag og samgöngur.
Umhverfis- og byggingarverkfræði er kennd á þremur stigum:
- Almennt grunnnám, 3 ár, lýkur með BS prófi
- Meistaranám, 2 ár, lýkur með MS prófi (forsenda starfsréttinda sem verkfræðingur)
- Doktorsnám, 3 ár, lýkur með doktorsprófi
Gott aðgengi nemenda að kennurum er einkennandi fyrir deildina en aðgengið er jafnframt undirstaða þess góða anda sem þar ríkir.
Öflugar rannsóknir kennara og sterk tenging við atvinnulífið tryggja að verkefni nemenda eru raunhæf og byggja ávallt á nýjustu þekkingu á fagsviðunum.
Áralöng reynsla er fyrir því að nemendur með próf í umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands hafi staðið sig afburðavel í framhaldsnámi við bestu verkfræðiskóla heims.
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd
Jarðskjálftaverkfræði
- Rannsóknarmiðstöð í jarðskjálftaverkfræði
- ICEARRAY mælanetið
- Alþjóðleg ráðstefna um áhrif Suðurlandsskjálftans


