Grunnnám
Langar þig að hafa áhrif á framtíðina? Leyfa sköpunargáfunni að blómstra og vera virkur þátttakandi í mótun umhverfis og mannvirkja? Þá ertu á réttri hillu í umhverfis- og byggingarverkfræði.
Nám
Nám í umhverfis- og byggingarverkfræði byggir á haldgóðri þekkingu í stærðfræði, raungreinum, íslensku og ensku (sjá inntökuskilyrði). Grunnnámið er þriggja ára nám sem lýkur með BS gráðu í umhverfis- og byggingarverkfræði. Til að öðlast réttindi til starfsheitisins verkfræðingur þarf einnig að ljúka meistaraprófi.
Gott aðgengi nemenda að kennurum einkennir deildina og er undirstaða þess góða anda sem þar ríkir. Umhverfis- og byggingarverkfræðideild er á Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands.
Nemendur með BS próf í umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands hafa staðið sig afburðavel í framhaldsnámi við bestu verkfræðiskóla heims.
Kennsla
Fyrstu tvö árin byggjast á kjarnanámskeiðum með talsverðri áherslu á stærðfræði og eðlisfræði ásamt grunnnámskeiðum í verkfræði. Á þriðja námsári eru valfög í boði að hluta til (sjá kennsluskrá). Námið er bæði bóklegt og verklegt. Kennslan byggir á fyrirlestrum og dæmatímum þar sem nemendum er skipt í smærri hópa við lausn verkefna. Verkefnavinna er mikilvægur hluti námskeiða og verkefni gjarnan unnin í hópum. Farnar eru vettvangsferðir til að skoða áhugaverð mannvirki. Nemendum sem lokið hafa fyrsta námsári gefst kostur á að taka eitt til tvö misseri í skiptinámi við erlenda samstarfsskóla.
Yfirlit yfir námið í samantekt
Atvinnumöguleikar
Umhverfis- og byggingarverkfræðingar koma víða við sögu í mannvirkjagerð og umhverfismótun. Þeir hanna hús, brýr, hafnir, stíflur, vegi og orkumannvirki. Þeir reikna burðarþol og tryggja að mannvirkin standist óblíð náttúruöfl landsins auk þess að meta áhættu og leita lausna sem lágmarka tjón sem hlýst af t.d. jarðskjálftum og flóðum. Þeir stjórna og hafa eftirlit með byggingarframkvæmdum og viðhaldsverkefnum. Einnig greina þeir gögn og þróa tölvulíkön til þess að spá fyrir um framtíð þjóðfélagsins. Umhverfis- og byggingarverkfræðingar taka þátt í að meta umhverfisáhrif framkvæmda og koma að skipulagi byggðar. Þeir rannsaka áður óþekkt viðfangsefni og þróa tækni sem hentar íslenskum aðstæðum.
Húsnæði
Fræðilegt nám fer að mestu leyti fram í VR-II. Verklegt nám er kennt á rannsóknastofum í VR-III og á vettvangi.
Félagslíf
Félag nemenda við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild nefnist Naglarnir. Félagið gætir hagsmuna nemenda og á fulltrúa í nefndum og á deildarfundum. Félagið stuðlar að virku félagslífi nemenda og stendur fyrir ýmsum atburðum á hverju ári, svo sem vísindaferðum og árshátíð. Nánari upplýsingar fást á heimasíðu félagsins.
Hafa samband
Verkefnastjóri grunnáms í Umhverfis- og byggingarverkfræði er Guðrún Helga Agnarsdóttir, ulla@hi.is. Skrifstofan hennar er í VR-II og síminn er 525-4646.
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd
Jarðskjálftaverkfræði
- Rannsóknarmiðstöð í jarðskjálftaverkfræði
- ICEARRAY mælanetið
- Alþjóðleg ráðstefna um áhrif Suðurlandsskjálftans


