Leiðandi afl í hröðum framförum

Umhverfis- og byggingar verkfræðideild heyrir undir verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands. Deildin hefur verið leiðandi afl í hröðum framförum og örri uppbyggingu í umhverfismálum og byggingarverkfræði undanfarna áratugi. Í boði er metnaðarfullt nám í umhverfis- og byggingarverkfræði:Grunnnám til BS prófs, meistaranám til MS prófs og doktorsnám, Ph.D. Við deildina starfar einvalalið vel menntaðra og þjálfaðra kennara og vísindamanna. Öflugar rannsóknir kennara og sterk tengsl við atvinnulífið tryggja að verkefni sem nemendur vinna eru raunhæf og byggja ávallt á nýjustu þekkingu á fagsviðunum. Alþjóðleg tengsl eru sterk. Allir fastráðnir kennarar hafa stundað nám og rannsóknir við virta erlenda háskóla og eru í fremstu röð í sínum fræðum í alþjóðlegu vísindasamfélagi. Mikið samstarf er við viðurkennda erlenda háskóla og nemendum deildarinnar gefst kostur á að sækja hluta af námi sínu til þeirra.

georg