Umsókn
Grunnnám/BS
Opið er fyrir umsóknir í grunnnám frá 1. mars til 5. júní ár hvert.
Allar umsóknir í grunnnám/BS fara fram með rafrænum hætti: Rafræn skráning í grunnnám
Starfsfólk Þjónustuborðs á Háskólatorgi, námsráðgjafar og starfsfólk Nemendaskrár veita fúslega upplýsingar og aðstoð.
Umsóknum skal fylgja staðfest afrit af stúdentsprófsskírteini. Fylgigögn skal senda í pósti til Nemendaskrár Háskólans, Háskólatorgi við Sæmundargötu, 101 Reykjavík.
Þeir sem ljúka stúdentsprófi að vori sækja um rafrænt fyrir 5. júní og skila fylgigögnum jafnskjótt og þau liggja fyrir.
Afgreiðsla umsókna og staðfesting:
- Öllum umsóknum er svarað.
- Þeir sem hljóta skólavist fá sendan greiðsluseðil skráningargjalds um leið og unnið hefur verið úr umsóknum.
- Skráning tekur gildi við greiðslu skráningargjalds, innan tímamarka sem fram koma á greiðsluseðli.
- Skráningargjald er ekki endurkræft.
- Skráning í einstök námskeið getur ekki farið fram fyrr en skrásetningargjald er greitt.
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Framhaldsnám: MS/Ph.D.
Umsóknarfrestur um framhaldsnám, MS og Ph.D., er 15. apríl fyrir haustmisseri og 15. október fyrir vormisseri (ef tekið er inn á vormisseri). Fyrir erlenda umsækjendur er umsóknarfresturinn 1. febrúar fyrir komandi skólaár. Ekki eru veittar undanþágur frá umsóknarfresti. Athugið að nemendur sem ljúka BS-námi við Verkfræði- og náttúruvísindasvið HÍ þurfa einnig að sækja um í framhaldsnám.
Rafræn umsókn um framhaldsnám.
Allir umsækjendur skulu sækja rafrænt um framhaldsnám. Eyðublaðið er aðgengilegt á umsóknartíma. Öllum fylgigögnum með umsókn skal skilað á skrifstofu Verkfræði- og náttúruvísindasviðs í Öskju, Sturlugötu 7, 101 Reykjavík.
Eftirfarandi gögn eiga að fylgja umsókninni:
- Námsferill, staðfest afrit prófskírteina (ekki skönnuð afrit eða ljósrit) og Diploma Supplement frá þeim sem það hafa (þarf ekki hjá umsækjendum sem hafa lokið fyrra námi sínu hjá Háskóla Íslands).
- Ferilskrá.
- Ritaskrá (þar sem við á).
- Greinargerð (eigi lengri en ein A4 bls.) um markmið umsækjanda og væntingar hans til námsins þar sem m.a. kemur fram hvers vegna umsækjandi hefur áhuga á náminu og hvernig hann vill nýta sér það.
- Tvær umsagnir, t.d. frá kennurum eða vinnuveitanda. Athugið að umsagnaraðilar eiga að senda umsagnir sínar beint til Háskóla Íslands. Umsagnareyðublaðið má finna hér. Umsagnareyðublað á ensku er hér.
- Liggi fyrir drög að umsókn um fjárstuðning til sjóða skulu þau fylgja.
- Hyggist umsækjandi vinna rannsóknarverkefni utan deildar eða stofnana hennar skal fylgja með yfirlýsing og staðfesting á þátttöku þeirrar stofnunar eða fyrirtækis sem umsækjandi hyggst vinna verkefnið með.
-Vinsamlegast gætið þess að öll umbeðin fylgigögn berist sem fyrst.
-Upplýsingar um námið, aðgangskröfur o.fl. er að finna í kennsluskrá.
-Nemandi þarf að leggja fram skriflega námsáætlun fyrir lok 1. misseris í samráði við umsjónarkennara.
Nánari upplýsingar veitir Hafdís Eyjólfsdóttir, verkefnisstjóri framhaldsnáms, s: 525 4473, netfang: hafdisey@hi.is.
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd

