Stærðfræði



Sérhæfing 

Í framhaldsnámi getur nemandinn einbeitt sér að ákveðnu sviði hagnýttrar stærðfræði, t. d. reiknifræði eða tölfræði, eða haldið út á hinar víðfeðmu ævintýralendur hreinnar stærðfræði.

Í meistaranámi í stærðfræði vinnur nemandinn 60 einingar rannsóknarverkefni á einhverju sviði hreinnar eða hagnýttrar stærðfræði og tekur auk þess 60 einingar í námskeiðum.

Í doktorsnámi í stærðfræði er aðaláherslan á viðamikið rannsóknarverkefni.  Þess er krafist að niðurstöður úr rannsóknarverkefninu séu birtingarhæfar í alþjóðlegum vísindatímaritum.  Gera má ráð fyrir að doktorsnám taki að minnsta kosti þrjú ár eftir að meistaraprófi er lokið.  Mögulegt er að halda beint í doktorsnám að loknu BS-prófi og má þá gera ráð fyrir að námstíminn sé að minnsta kosti þrjú ár.

deila á facebook