Stærðfræði



Brýn þörf er á vel menntuðum stærðfræðingum í margvísleg lykilstörf í þjóðfélaginu, t.d. hjá fyrirtækjum tengdum hátækni í  erfða- og lífvísindum, hagfræði og hugbúnaði og tryggingum ásamt kennslu og í rannsóknastörf við háskólastofnanir.

Öfugt við það sem margir halda er ekki búið að reikna allt sem hægt er að reikna. Stærðfræði er lifandi fræðigrein og framfarir hafa aldrei verið meiri en á síðustu árum. Þörf er fyrir starfsfólk með góða stærðfræðiþekkingu á sífellt fleiri sviðum þjóðlífsins.

Til að ljúka BS-prófi í stærðfræði þarf nemandi að ljúka að minnsta kosti 120 einingum í stærðfræði (námskeið sem kennd eru í öðrum deildum, t.d.Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild, má telja með).

Til viðbótar við stærðfræðinámskeið getur nemandi valið að taka allt að 60 eininga heildstætt nám í einhverri annarri grein.

Raunvísindadeild hefur skilgreint eftirfarandi kjörsvið:

  • Reiknifræði
  • Tölvunarfræði
  • Eðlisfræði
  • Sameindalíffræði
  • Fjármál
  • Líkinda- og tölfræði
  • Hagfræði
  • Stærðfræðimenntun

Sjá nánari upplýsingar í kennsluskrá.

Nemandinn getur einnig með samþykki deildarinnar aðlagað kjörsviðin eigin áhugamálum eða þá búið til sitt eigið kjörsvið með annarri hliðargrein.

deila á facebook