Nám með vinnu
- Allt grunnnám í raunvísindadeild er skilgreint sem fullt nám og ekki er æskilegt að nemendur stundi vinnu með námi.
- Undir sérstökum kringumstæðum býðst nemendum að stunda nám sem hlutastarf
- Grunnnámið er mjög yfirgripsmikið og mikil tímasókn er vegna verklegrar þjálfunar. Góður grunnur að frekara námi og starfi á sviðinu fæst aðeins með góðri ástundun.
- Athygli er vakin á að lágmarkseinkunnar á BS prófi er krafist fyrir frekara framhaldsnám.
Reglur raunvísindadeildar um nám sem hlutastarf:
Nemandi, sem sér fram á að geta ekki stundað nám eða haldið áfram námi við raunvísindadeild með eðlilegum hraða og telur sig hafa gildar ástæður til þess, getur sótt um til deildar að fá að innritast í námið sem hlutastarf.
Grundvallarskilyrði gagnvart þessum reglum er að nemandi sæki um fyrir fram. Heimild, sem veitt er til náms skv. þessum reglum, gildir frá og með næsta misseri eftir að umsókn er lögð fram enda sé það gert eigi síðar en tveimur mánuðum áður en misserið hefst. Sama gildir um heimildir til breytinga á áætlun.
Nemandinn skal tilgreina skýrar ástæður og leggja fram rökstudda áætlun um framvindu námsins. Meginreglan skal þá vera sú að námsframvindan sé tiltekin sem fjöldi eininga á ári allt til loka.
Gildar ástæður í þessu viðfangi eru m.a.:
- Að nemandi sé ráðinn í fasta, reglubundna vinnu samhliða náminu, og skulu þá fylgja viðeigandi upplýsingar frá vinnuveitanda
- Að nemandi sé að eiga barn. Móðir barns á rétt á allt að sex mánaða "barnsburðarleyfi" gagnvart reglum deildarinnar um námsframvindu og getur til dæmis gert hlé á námi í eitt misseri. Faðir getur einnig sótt um sanngjarna ívilnun vegna barnsburðar.* að nemandi hafi þungt heimili, t.d. vegna barna eða e.t.v. vegna heimilismanna sem eru fatlaðir eða aldraðir. Viðeigandi vottorð um þetta skulu fylgja umsókn.
- Að nemandi sé haldinn varanlegum sjúkdómi eða fötlun skv. framlögðu læknisvottorði
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd

