Lífefnafræði



Aukin sérhæfing

Framhaldsnám í lífefnafræði hefur stóreflst á undanförnum árum samhliða vaxandi áherslu á rannsóknastörf innan Háskóla Íslands og vöxt tæknifyrirtækja innanlands. Í framhaldsnámi gefst nemendum í senn tækifæri til að starfa að rannsóknarverkefnum í tengslum við starfsmenn deildarinnar og að taka þátt í sérhæfðari námskeiðum en bjóðast í grunnáminu. Áhersla er lögð á erlenda samvinnu. Framhaldsnámi lýkur ýmist með meistaraprófsgráðu (MS.; 60 einingar) eða doktorsprófsgráðu (PhD.; 120 einingar).

deila á facebook