Inntökuskilyrði
Inntökuskilyrði í grunnám:
Til viðbótar stúdentsprófi gerir raunvísindadeild kröfur um að stúdentsprófið innihaldi að lágmarki eftirfarandi fjölda eininga í einstökum greinum: stærðfræði 21 eining og raungreinar samtals 30 einingar, þar af a.m.k. 6 einingar í eðlisfræði, 6 einingar í efnafræði og 6 einingar í líffræði.
Skorti 8 einingar eða minna á að lágmarkskröfum 1. mgr. sé fullnægt getur raunvísindadeild engu að síður heimilað nemanda að innritast í nám við deildina en henni er þá heimilt að setja skilyrði um að nemandinn ljúki námi í tilteknum greinum sem á vantar sem fyrst eftir innritun í raunvísindadeild eða samhliða námi sínu í deildinni.
Raungreinadeildarpróf frá frumgreinasviði Háskólans í Reykjavík (áður Tækniháskóla Íslands) nægir til inngöngu í nám við deildina til jafns við stúdentspróf, enda sé fullnægt skilyrðum um lágmarkskröfur í einstökum greinum, samanber 1. og 2. mgr. hér á undan. Sömuleiðis nægir próf frá háskólabrú Keilis til inngöngu í nám í raunvísindadeild ef viðkomandi hefur lokið 3 önnum í námi fyrir þá nemendur sem ætla sér að stunda nám í verkfræði eða náttúrvísindum.
Allir sem lokið hafa þriggja ára háskólanámi til fyrstu háskólagráðu í hvaða grein sem er uppfylla skilyrði til að innritast í grunnám við raunvísindadeild.
Deildarráði er heimilt að setja nánari ákvæði um útfærslu á 1. til 3. mgr. og skulu þau þá birt í kafla deildarinnar í kennsluskrá.
Inntökuskilyrði í framhaldsnám:
Til að geta innritast í nám til meistaraprófs við raunvísindadeild þarf stúdent að hafa lokið BS-prófi frá deildinni með lágmarkseinkunn 6,5 eða sambærilegu prófi sem raunvísindadeild viðurkennir.
Til að innritast í nám til doktorsprófs við raunvísindadeild skal stúdent hafa lokið MS-prófi frá deildinni eða hafa sambærilegt próf sem raunvísindadeild viðurkennir. Stúdent getur innritast í doktorsnám án undanfarandi meistaraprófs og þarf hann þá að hafa lágmarkseinkunn 7,0 á BS-prófi, eða sambærilegan árangur í prófi sem raunvísindadeild viðurkennir.
Heimilt er að víkja frá ákvæðum um ofangreindar lágmarkseinkunnir mæli deild eindregið með því.
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd

