Efnafræði



Öflugar rannsóknir

Framhaldsnám í efnafræði hefur stóreflst á undanförnum árum samhliða vaxandi áherslu á rannsóknastörf innan Háskóla Íslands og vöxt tæknifyrirtækja innanlands. Í framhaldsnámi gefst nemendum í senn tækifæri til að starfa að rannsóknarverkefnum í tengslum við starfsmenn skorarinnar og að taka þátt í námskeiðum. Áhersla er lögð á erlenda samvinnu. Framhaldsnámi lýkur ýmist með diploma (60 einingar), meistaraprófi (M.S. 60 einingar) eða doktorsprófi (Ph.D. 120 einingar).

deila á facebook