Efnafræði
Ein af undirstöðugreinum raunvísinda er efnafræðin auk þess að vera sjálfstæð vísinda- og tæknigrein.Námið miðast að því að skapa þekkingu og færni meðal nemenda til að takast á við fjölbreytileg verkefni á sviði efnafræði og afleiddra greina með skilning að leiðarljósi.
Nám
Efnfræði er þriggja ára fræðilegt 180 eininga grunnnám til BS gráðu. Henni er gjarnan skipt í eftirtaldar grunngreinar:
- Ólífræn efnafræði kynnir fyrir stúdentum fræðin á bak við efnatengi og lögun sameinda. Efnafræði mismunandi hópa í lotukerfinu er skoðuð og er lögð áhersla á hliðarmálma. Kristalbyggingar og hvarfgangar eru skoðaðir og greiningaraðferðir komplexa kynntar. Verklegur hluti kennir stúdentum helstu atriði í smíði ólífrænna og málmlífrænna sameinda.
- Eðlisefnafræði kynnir stúdentum varmafræði, skammtafræði og aflfræði efna. Fræðin byggjast á eðliseiginleikum efna og kennir meðal annars aðferðir við að reikna út lögun sameinda. Eðlisfræðin á bak við titring og snúning sameinda er kennd bæði í fyrirlestrum og í verklegum tímum.
- Efnagreining er samofin öllum grunngreinum efnafræðinnar. Þar eru nýjar aðferðir til mælinga þróaðar.
- Lífræn efnafræði er með áherslu á smíði lífrænna efna. Bygging nýrra sameinda og hvarfgangar til myndunar þeirra er grandskoðað. Lyfjaefnafræði er mjög tengd lífrænni efnafræði.
Efnafræði skiptist þrjú kjörsvið:
- Lífræn og ólífræn efnafræði
- Eðlisefnafræði og efnagreiningar
- Efnafræði með áherslu á efnaverkfræði
Kennsla
Námið er bæði bóklegt og verklegt. Verklegur hluti kennir verklag við störf á tilraunastofu og mælitækni við greiningu efna. Krafist er sjálfstæðis stúdenta við að kynna sér rannsóknir og leita upplýsinga um framkvæmd efnasmíða. Skipulag náms og námskeið (kennsluskrá)
Atvinnumöguleikar
Efnafræðingar eru eftirsóttir sérfræðingar í hátækniiðnaði, smáiðnaði hverskonar og á opinberum vettvangi við rannsóknir og eftirlit. Mikil þörf er á menntuðum efnafræðingum til kennslu við framhaldsskóla landsins.
Húsnæði
Bókleg kennsla fer að mestu leyti fram í VR-II en verkleg kennsla fer að öllu leyti fram í VR-I.
Félagslíf
Nemendafélag efnafræðinema heitir Hvarf og heldur uppi mjög öflugu starfi fyrir nemendur.
Hafa samband
Kennslustjóri grunnnáms í efnafræði er Guðrún Helga Agnarsdóttir ulla@hi.is Hún er staðsett á skrifstofunni í VR-II og síminn 525-4646
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd

