Eðlisfræði
Lögmál náttúrunnar eru viðfangsefni eðlisfræðinnar og er hún notuð til að lýsa hegðun ýmissa kerfa á stærðarkvarða frá nanómetrum til ljósára. Eðlisfræðin er ýmist stunduð með tilraunum eða frá kennilegri hlið.
Nám
Grunnnám í eðlisfræði til BS prófs er þriggja ára nám. Að því loknu velja flestir framhaldsnám heima eða erlendis. Skyldunámskeið í eðlisfræði eru helmingur námsins, stærðfræðinámskeið sem að hluta til eru valin eftir áhuga nemenda eru um fjórðungur námsins en afgangurinn eru valnámskeið. Velja má námskeið í eðlisfræði eða úr öðrum námsbrautum.
Helstu sérsvið eðlisfræðinga eru: Eðlisfræði lífs, eðlisfræði þéttefnis, frumeindaeðlisfræði, heimsfræði, kjarneðlisfræði, ljósfræði, skammtafræði, strengjafræði, stjarneðlisfræði, tölvueðlisfræði, varma- og safneðlisfræði, veðurfræði og öreindafræði.
Kennsla
Námið er bæði bóklegt og verklegt. Í verklegum hluta er verklag við störf á tilraunastofu þjálfað og meðferð mælitækja. Krafist er sjálfstæðis stúdenta við að kynna sér rannsóknir og leita upplýsinga. Skipulag náms og námskeið (kennsluskrá).
Atvinnumöguleikar
Eðlisfræðingar er eftirsóttir í margs konar störf og nýtist menntun þeirra á fjölbreytilegan hátt. Starfsvettvangur eðlisfræðinga hentar báðum kynjum vel. Eðlisfræðingar vinna við margvísleg rannsóknar- og tæknistörf sem krefjast traustrar grunnmenntunar í raunvísindum. Þeir stunda einnig kennslu og sinna stjórnunarstörfum. Þeir starfa oft með verkfræðingum og öðru tæknifólki. Viðfangsefni þeirra kalla á lausnir sem koma úr mörgum áttum.
Húsnæði
Verklegt kennsla fer að mestu leyti fram í VR-III og VR-I þar sem tilraunastofur í eðlisfræði eru staðsettar. Bókleg kennsla fer í VR-II, sölum í Háskólabíós og víðar á háskólasvæðinu.
Félagslíf
Félag eðlisræðinema heitir Stigull. Það heldur uppi öflugu starfi meðal nemenda
Hafa samband
Verkefnastjóri grunnnáms í eðlisfræði er Guðrún Helga Agnarsdóttir ulla@hi.is Hún hefur aðsetur á skrifstofu Verkfræði- og náttúruvísndasviðs í VR-II og síminn 525-4646
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd

