Um Rafmagns- og tölvuverkfræðideild



Rafmagns- og tölvuverkfræðideild heyrir undir verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands. Í boði er metnaðarfullt nám í rafmagnsverkfræði og tölvuverkfræði á þremur stigum: Grunnnám til BS prófs, meistaranám til MS prófs og doktorsnám, Ph.D.

Við deildina starfar einvalalið vel menntaðra og þjálfaðra kennara og vísindamanna sem veita nemendum framúrskarandi kennslu og handleiðslu.

Afar sterk rannsóknarhefð er í deildinni og rík áhersla er lögð á að birta rannsóknarniðurstöður kennara og nemenda á alþjóðlegum ritrýndum vettvangi, bæði á ráðstefnum og í tímaritum. Það ásamt öflugri alþjóðlegri samvinnu og samstarfi við atvinnulíf gerir deildinni kleift að vera í fremstu röð í ögrandi samkeppnisumhverfi.

Mikið samstarf er við viðurkennda erlenda háskóla og nemendum deildarinnar gefst kostur á að sækja hluta af námi sínu til þeirra.

Rafmagns- og tölvuverkfræðideild
Hjarðarhaga 6
107 Reykjavík

Sími: 525 4700
Fax: 525 4632
Netfang
: von@hi.is

deila á facebook