Rannsóknir



Rannsóknir í rafmagns- og tölvuverkfræðideild heyra undir Verkfræðistofnun, vettvang rannsókna í verkfræði og tölvunarfræði við HÍ. Deildin er einnig aðili að VOR, vettvangi orku og stóriðjurannsókna HÍ.

Kennarar deildarinnar vinna að margvíslegum fræðilegum og hagnýtum rannsóknum í samstarfi við fyrirtæki og stofnanir í íslensku atvinnulífi. Þeir eru einnig afar virkir í alþjóðlegu vísindasamfélagi og leggja ríka áherslu á að birta niðurstöður rannsókna sinna í formi ritrýndra greina í viðurkenndum vísindaritum og á íslenskum og alþjóðlegum vísindaráðstefnum.

Helstu rannsóknarsvið fastra kennara eru listuð hér að neðan ásamt tengingu yfir á heimasíður þeirra þar sem hægt er að fá nánari upplýsingar um rannsóknir þeirra.

Stýritækni:

Anna Soffía Hauksdóttir, prófessor:
- Stýritækni, tölvuverkfræði.

Tölvuverkfræði:

Helgi Þorbergsson, dósent:
- Tölvuverkfræði, hugbúnaðarverkfræði.

Fjarskiptaverkfræði:

Hrefna M. Gunnarsdóttir, lektor:
- Loftnet og bylgjuútbreiðsla, fjarkönnun, fjarkönnun á Mars, merkjafræði.

Raforkuverkfræði:

Egill Benedikt Hreinsson, prófessor:
- Raforkukerfi, rafmagnsvélar, raforkumarkaðir og raforkuhagfræði, aflrafeindatækni, orkukerfi.

Magni Þór Pálsson, lektor:
- Raforkuverkfræði, greining raforkukerfa, álagsflæði, kvik hegðun, stöðugleiki, vindorka og aðrar endurnýjanlegar orkulindir.

Rafeindatækni:

Ragnar Ólafsson, lektor:
- Læknisfræðileg myndgerð, úthljóðsmyndgerð, ljóshljóðtækni .

Merkjafræði:

Jóhannes R. Sveinsson, prófessor:
- Merkjafræði,  wavelet vörpun, curvelet vörpun, síubankar, suðsíun SAR mynda, mynd- og gagnabræðsla, flokkun fjarkönnunargagna, tauganet, myndvinnsla.

Mynstursgreining/Fjarkönnun:

Jón Atli Benediktsson, prófessor:
- Mynstursgreining, myndvinnsla, merkjafræði, fjarkönnun, greining á læknisfræðilegum merkjum og gagnabræðsla.

Tölfræðileg merkjafræði: 

Magnús Örn Úlfarsson, lektor:
- Tölfræðileg merkjafræði, myndvinnsla, kvik segulómsmyndgerð (fMRI).

deila á facebook