Nám



Fjölbreytt og skemmtilegt nám á traustum grunni. 

Meðal fagsviða rafmagns- og tölvuverkfræðinga eru; áreiðanleikagreining, stýrikerfi, fjarkönnun, greining lífeðlisfræðilegra merkja og gagnabræðsla, hálfleiðarar, loftnet og bylgjuútbreiðsla, merkjafræði, myndvinnsla, mynsturgreining, mælitækni, stýritækni, radíótækni, rafdrif og rafmagnsvélar, rafeindatækni, rafgos, raforkuhagfræði, raforkukerfi, ígreyptar tölvur, raun-tímakerfi og hugbúnaðarsmíði. 

Flutningur og meðhöndlun á upplýsingum fyrir útvarps- og sjónvarpskerfi, símakerfi og raforkukerfi hvort sem er með merkjaflutningslínum, ljósleiðurum eða þráðlaust eru meðal viðfangsefna rafmagns- og tölvuverkfræðinga. 

Rafmagns- og tölvuverkfræði er kennd á þremur stigum: 

  • Nám í rafmagns- og tölvuverkfræði gefur grunn í hönnun, byggingu og virkni rása og kerfa. Námið miðar einnig að því að veita góða undirstöðuþekkingu í hönnun vélbúnaðar og hugbúnaðar. Hönnun og smíði sérhæfðs jaðarbúnaðar við tölvur ásamt greiningu gagna og þróun úrvinnsluaðferða er einnig stór þáttur í náminu.
  • Með tilkomu nýrrar þekkingar á upplýsingatækni hefur skörun hennar við fjarskiptatækni komið æ betur í ljós. Deildin leggur áherslu á undirstöðuþekkingu í fjarskiptatækni sem nemendur geta samtvinnað upplýsingatækni með fjölbreyttu námskeiðsvali. 
  • Nemendur sem brautskrást frá deildinni eru eftirsóttir á mörgum sviðum atvinnulífs og hæfni þeirra og menntun nýtast æ víðar í nútímaþjóðfélagi. Þeir hafa einnig staðið sig afburðavel í framhaldsnámi við bestu verkfræðiskóla erlendis.
deila á facebook