Meistaranám
Meistaranám (MS)
Meistaranámið er tveggja ára nám eða fjögur misseri, samtals 120 ECTS einingar. Náminu lýkur með meistaragráðu í rafmagns- og tölvuverkfræði.
Námsáætlun:
- Nemandi velur umsjónarkennara úr hópi fastra kennara við deildina
- Nemandi velur námsleið í samráði við umsjónarkennara. Miðað er við að fyrra árið sitji nemendur námskeið og síðara árið sé unnið að rannsóknarverkefni.
- Í meistaranáminu er hægt að taka námskeið að hluta til við erlenda háskóla.
- Meistaraverkefni er unnið í samráði við umsjónarkennara. Er það tveggja missera vinna eða 60 ECTS einingar. Rannsóknarsvið fastra kennara deildar má finna hér.
- Meistarapróf er forsenda þess að öðlast réttindi til starfsheitisins verkfræðingur. Sækja þarf um þessi réttindi til iðnaðarráðuneytisins.
Frekari upplýsingar:
- Rafmagns- og tölvuverkfræði, meistarapróf, 120 einingar
- Forkröfur fyrir meistaranám í verkfræði
- Skráning í nám og umsóknarferli
Doktorsnám (Ph.D.)
- Doktorsnám að loknu meistaraprófi er 180 einingar, þriggja ára nám í fullu starfi hið minnsta.
- Námið er einstaklingsmiðað og skipulagt í samráði við leiðbeinendur.
- Námið skiptist í námskeiðshluta og rannsóknarverkefni. Námskeiðshlutinn jafngildir 60 einingum hið minnsta. Eftir að námskeiðshluta lýkur hefur doktorsnemi að lágmarki eins árs viðveru við Háskóla Íslands.
Helstu rannsóknarsvið fastra kennara og tenging yfir á heimasíður þeirra
Rafmagnsverkfræði, doktorspróf, 180 einingar
Rafmagns- og tölvuverkfræði, doktorspróf, 180 einingar
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd

