Inntökuskilyrði
Forkröfur og undirbúningur:
Stúdentspróf eða sambærilegt próf frá erlendum skóla.
Nemendur sem lokið hafa vélstjórnarbraut 4. stigs við Vélskóla Íslands eða raungreinadeildarprófi frá Háskólanum í Reykjavík (áður Tækniháskóla Íslands) teljast uppfylla inntökuskilyrði.
Fyrsta árið byggir einkum á stærðfræði og eðlisfræði og því er traust undirstaða í þeim greinum nauðsynleg.
Æskilegur undirbúningur undir nám í verkfræði er:
Að minnsta kosti 24 einingar í stærðfræði.
30 einingar í náttúrufræðigreinum (þar af minnst 6 einingar í eðlisfræði).
Ábending til framhaldsskólanema:
Nauðsynlegur undirbúningur fyrir nám við verkfræði er haldgóð þekking í stærðfræði, raungreinum, íslensku og ensku. Í stærðfræði er mælt með að nemendur taki kjarnaáfanga náttúrufræðibrautar (103-503) auk einhverra eftirtalinna áfanga: 313, 413, 513, 523, 603 og 703.
Nánari lýsing:
STÆ 103 Jöfnur, rúmfræði og hlutföll
STÆ 203 Algebra og föll
STÆ 303 Hornaföll, vigrar og talningarfræði
STÆ 403 Föll, markgildi og deildun
STÆ 503 Heildun, runur og raðir
STÆ 313 Tölfræði og líkindareikningur 1
STÆ 413 Tölfræði og líkindareikningur II
STÆ 513 Strjál stærðfræði
STÆ 523 Rúmfræði
STÆ 603 Yfirlitsáfangi
STÆ 703 Stærðfræðigreining
Inntökuskilyrði í meistaranám er BS gráða í verkfræði, tölvunarfræði eða raunvísindum.
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd

