Nám



Skemmtilegt og lifandi 

Nám í líf- og umhverfisvísindadeild skiptist í grunnnám sem lýkur með BS gráðu og framhaldsnám sem felur í sér þrjár námsleiðir: diplómapróf (í líffræði) , meistarapróf og doktorspróf. 

Markmið BS-námsins er að nemendur öðlist: 

  • grunnþekkingu á viðkomandi fræðasviði
  • færni til að afla frekari þekkingar
  • skilning á sköpun nýrrar þekkingar 
  • geti lagt mat á niðurstöður rannsókna
  • geti miðlað þekkingu til annarra í ræðu og riti 

Að loknu BS prófi standa ýmsar dyr opnar. Framhaldsnám til meistara- eða doktorsprófs stendur til boða í ýmsum undirgreinum líf- og umhverfisvísindanna, en margir fara í framhaldsnám í öðrum deildum. Dæmi um slíkt er uppeldis- og kennslufræðinám, MS nám í umhverfis- og auðlindafræði og meistara- eða doktorsnám við læknadeild.

Fjölmargir kjósa að stunda doktorsnám erlendis að loknu BS- prófi og hefur þeim langflestum gengið mjög vel þar sem námið við Háskóla Íslands veitir breiða og góða grunnmenntun.

Kennsla í flestum námskeiðum fer fram á íslensku.Kennslubækur eru flestar á ensku og því er enskukunnátta mikilvæg. Námið krefst verulegrar færni i að tjá sig í ræðu og riti.

 


deila á facebook

Athyglisverðir viðburðir og námskeið: