Rannsóknir
Rannsóknir starfsmanna jarðvísindadeildar eru unnar á vettvangi Jarðvísindastofnunar HÍ. Þar sinna fastráðnir kennarar rannsóknum auk sérfræðinga, nýdoktora og framhaldsnema.
Rannsóknum er skipt í þrjú meginþemu:
- Eldfjallafræði (Understanding volcanoes)
- Umhverfi og veðurfar (Environment and climate)
- Jarðskorpuferli (Crustal processes)
- Rannsóknir beinast að ýmsum þeim ferlum sem eru sérstaklega virk á Íslandssvæðinu, í skorpu og möttli jarðar, í eldstöðvum og jarðhitasvæðum, jöklum og straumvötnum, setlögum á landi og í sjó, gróðurfari og jarðvegseyðingu.
- Rannsóknirnar tengjast náttúruauðlindum Íslendinga, sérstæðri náttúru landsins í jarðfræðilegu tilliti og framlagi Íslendinga til hnattrænnar þekkingar í jarðvísindum.
- Rannsóknaverkefni eru unnin í samvinnu við ýmsar rannsókna- og þjónustustofnanir, s.s. Almannavarnir, Flugmálastjórn, Hafrannsóknastofnunina, Íslenskar Orkurannsóknir, Jöklarannsóknafélag Íslands, Landhelgisgæsluna, Landsvirkjun, Náttúrufræðistofnun, Orkustofnun, Orkuveitu Reykjavíkur, Vatnamælingar, Veðurstofu Íslands, Vegagerðina, Umhverfisstofnun og fjölmargar erlendar háskólastofnanir.
- Starfsmenn veita Almannavörnum og öðrum opinberum aðilum ráðgjöf um náttúruvá af ýmsum toga ásamt upplýsingum til fjölmiðla um ýmis jarðvísindaleg efni.
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd


