Jarðfræði



Framhaldsmenntun í jarðfræði miðar að því að undirbúa nemendur til þátttöku og framfara á sem flestum sviðum jarðvísinda. Meistaranámið er uppbyggt þannig að helmingur námsins (60 einingar) er í námskeiðum og helmingur (60 einingar) er rannsóknarverkefni og ritgerð. Námskeið geta nemendur tekið við HÍ eða við háskóla í nágrannalöndum. MS námi lýkur með ritgerð sem kynnt er í opinberum fyrirlestri. Doktorsnámið er skilgreint sem 180 eininga nám (3 ár) að lokinni MS gráðu, eða 240 eininga nám eftir BS próf. Áherslan í doktorsnámi er að vinna sjálfstæða rannsókn undir leiðsögn kennara eða sérfræðinga við jarðvísindastofnun. Doktorsnámi lýkur með ritgerð og opinberri doktorsvörn.


deila á facebook