Jarðeðlisfræði



Á Íslandi gera náttúruöflin reglulega vart við sig. Eldfjöll gjósa og jörðin skelfur. Jarðeðlisfræði fjallar um eðli, gerð og hegðun jarðarinnar. Nám í jarðeðlisfræði er spennandi rannsóknarnám á undirstöðu þáttum lífs hér á jörðu.

Nám
Jarðeðlisfræði er þriggja ára fræðilegt 180 eininga grunnnám til BS gráðu

Jarðeðlisfræðin fjallar um eðli, gerð og hegðun jarðarinnar. Í BS-námi í jarðeðlisfræði er lögð mikil áhersla á undirstöðugreinar, svo sem stærðfræði og eðlisfræði og er námið að talsverðu leyti sameiginlegt með námi í eðlisfræði. Nemendur taka grunnnámskeið í jarðfræði og kynnast helstu viðfangsefnum og mæliaðferðum jarðeðlisfræðinnar. Þeir hljóta þjálfun í mælingum úti í náttúrunni og túlkun þeirra. Í BS-verkefni sem unnið er að á síðasta námsárinu fá nemendur tækifæri til að beita þekkingu sinni og færni á sjálfstætt rannsóknarverkefni.  Að loknu BS-námi jarðeðlisfræði er fólk vel í stakk búið til frekara náms eða starfa í jarðvísindum og skyldum greinum.

Kennsla
Námið er bæði bóklegt og verklegt. Verklegur hluti kennir verklag við mælingar, úrvinnslu og túlkun gagna. ;Nemendur fá að kynnast helstu jarðeðlisfræðilegum mæliaðferðum sem stunaðar eru á Ísland.  Krafist er sjálfstæðis stúdenta við að kynna sér rannsóknir og afla upplýsinga úr birtum vísinda greinum. Skipulag náms og námskeið (kennsluskrá)

Atvinnumöguleikar
Jarðeðlisfræðingar vinna ýmist að mælingum og athugunum á náttúrunni eða kennilegum rannsóknum þar sem stærðfræðileg líkön eru  gerð til að skýra athuganir og niðurstöður mælinga. Margir vinna bæði við mælingar og líkanasmíð og vaxandi fjöldi notar umfangsmikil tölvulíkön til að líkja eftir ferlum náttúrunnar.  .

Húsnæði
Bókleg kennsla fer að mestu leyti fram í Öskju en verkleg kennsla fer að mestu leyti fram á vettvangi. .

Félagslíf
Nemendafélag jarðvísindanema heitir Fjallið og heldur uppi mjög öflugu starfi fyrir nemendur.

Hafa samband
Verkefnastjóri grunnnáms í jarðeðlisfræði er Ragnhildur Skjaldardóttir rask@hi.is  Hún er staðsett á skrifstofunni í Öskju og síminn 525-4224

deila á facebook