Jarðfræði og jarðeðlisfræði

Jarðvísindadeild býður nám í jarðfræði og jarðeðlisfræði. Jarðvísindi eru mjög öflug fræði­grein í Háskóla Íslands, og nýtur deildin sambúðar og samstarfs við sérfræðinga á Jarð­vísinda­stofnun. Jarðvísindamenn leita skilnings á þeim ferlum sem þar eru að verki og rannsaka hraða þeirra. Þeir leitast við að tengja það sem gerst hefur í fortíð jarðarinnar við ferli sem nú eru í gangi og reyna að átta sig á mögulegum breytingum í framtíðinni, eins og hnattrænum loftslagsbreytingum. Jafnframt er þeirri þekkingu sem þannig er aflað beitt til þess að finna og nýta auðævi jarðar (málma, byggingarefni, eldsneyti, jarðhita, neysluvatn o. fl.) eða til að undirbúa mannvirkjagerð.