Nám



Fjölbreytt námsframboð

IVT deild býður fjölbreytt námsframboð verkfræði- og tölvunarfræðigreina sem eiga það sameiginlegt að vera afar hagnýtar og þýðingarmiklar við uppbyggingu og rekstur nútíma þjóðfélaga.

Um námið:

  • Rík áhersla á nýsköpun í öllu námi deildarinnar.
  • Öflugar rannsóknir kennara og sterk tenging við atvinnulífið tryggir raunhæf verkefni sem byggja ávallt á nýjustu þekkingu.
  • Mikilvægur hluti námskeiða er verkefnavinna sem unnin er í hópum.
  • Að loknu fyrsta námsári gefst kostur á að taka eitt til tvö misseri við erlenda samstarfsskóla.

Að námi loknu:

  • Hafa nemendur í iðnaðar- og vélaverkfræði haldgóða þekkingu á hvers konar flóknum útreikningum, hönnun burðarvirkja og vélbúnaðar, orkunotkun og -nýtingu, fjárfestingar- og arðsemis­útreikningum, gæðastjórnun, sjálfvirkum stýrikerfum og ýmsum tölfræðilegum aðferðum auk stjórnunar fyrirtækja og verkefna.
  • Brautskráðir nemendur í tölvunarfræði og hugbúnaðarverkfræði frá deildinni hafa yfirburða skilning á hugbúnaðarþróun og tölvutækni, breiða og góða grunnþekkingu sem auðvelt er að byggja ofan á. Þeir hafa haldgóða þekkingu á forritun, greiningu þarfa fyrir upplýsingatækni, hönnun, prófunum, verkefnastjórnun, gæðastjórnun og gerð margvíslegra líkana. Frábærir atvinnumöguleikar.
  • Frábærir atvinnumöguleikar.
deila á facebook

AQFood Aquatic Food Production - Nordic Master